Back to results

Bifröst University

Eru réttindi opinberra starfsmanna tímaskekkja ?

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um réttindi opinbera starfsmanna á Íslandi. Markmið er að kanna hvort réttindi, svo sem áminningarskylda, uppsagnarvernd, veikindaréttur og stytting vinnuvikunnar, teljist tímaskekkja í ljósi krafna um skilvirkni og sveigjanleika í opinberri þjónustu. Með rannsókninni er jafnframt leitast við að greina hvernig þessi réttindi og ferlar hafa áhrif á rekstur, starfsanda og hæfni stjórnenda til að bregðast við í síbreytilegu starfsumhverfi. Ritgerðin byggir á blandaðri rannsóknaraðferð þar sem bæði eigindleg og megindleg gögn voru nýtt. Tekin voru hálfopin viðtöl við stjórnendur og fulltrúa stéttarfélaga sem hafa víðtæka reynslu af rekstri opinberra stofnana og niðurstöður þeirra bornar saman við svör úr spurningakönnun sem lögð var fyrir starfsmenn á íslenskum vinnumarkaði. Helstu niðurstöður benda til þess að réttindin séu áfram mikilvægur þáttur í velferðarkerfinu og stuðli að stöðugleika og starfsánægju. Á sama tíma geta flóknir ferlar svo sem áminningarskylda og uppsagnarvernd takmarkað sveigjanleika stjórnenda og haft áhrif á skilvirkni ákvarðanatöku. Rannsóknin varpar þannig ljósi á flókið jafnvægi milli verndar, ábyrgðar og skilvirkni í opinberri stjórnsýslu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Kolbrún Bjarnadóttir 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52147
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52147

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Kolbrún Bjarnadóttir 1980-. Eru réttindi opinberra starfsmanna tímaskekkja ?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52147