Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar er að svara rannsóknarspurningunni: Hver er hugsanlegur ávinningur verkefnastýrðrar söluherferðar? Rannsóknin var framkvæmd með eigindlegri aðferðafræði og byggir á hálf- stöðluðum viðtölum við sjö þátttakendur úr ólíkum geirum sem tengjast íslenskri smásölu og þjónustu. Viðtölin fóru fram í október–nóvember 2025 og voru tekin upp og afrituð með samþykki þátttakenda; greiningin var unnin sem þemagreining í anda Braun og Clarke til að tryggja rekjanleika og áreiðanleika niðurstaðnanna. Niðurstöðurnar sýna að þegar herferðir eru skilgreindar og stýrt sem tímabundnum verkefnum með skýra eigendaskipan, ábyrgðarkeðju og formlegum áfangagáttum (e. operational readiness), eykst yfirsýn og árangur. Í framhaldinu er vísað til þessara formlegu áfangagátta sem OR-gátta. OR gátt skapar margvíslegan ávinning: aukna skilvirkni í tíma, kostnaði og gæðum; betri samhæfingu milli teyma; samræmdari viðskiptavinaupplifun og sterkari ímynd; og kerfisbundinn lærdóm milli lota með stöðlun sniðmáta og eftirfylgni mælikvarða. Lykilárangursvísar (e. key performance indicators, KPI) og taktísk stjórnun styður rauntímabreytingar og dregur úr framkvæmdaáhættu. Rannsóknin bendir jafnframt á skilyrði og mörk verkefnavæðingar: stjórnhættir þurfa að vera gagnsæir, ferlar hæfilega auðveldir miðað við áhættu og umfang og gagnainnviðir að styðja áreiðanlegan mælanleika; annars verður ramminn að formsatriðum sem hafa lítil sem engin raunáhrif sem skilar ekki hagræðingu. Framlag rannsóknarinnar er tvíþætt: (1) fræðilegt með því að tengja verkefnastjórnunarlíkön, þjónustugæði og árangursmælingar við söluherferðir í íslensku samhengi; og (2) hagnýtt með lýsingu á verk- og stjórnrömmum (eigendaskilgreining, OR-gátt, KPI-mælaborð, taktfundir, og hvaða lærdóm má draga af þessu) sem fyrirtæki geta innleitt. Helstu takmarkanir liggja í afmörkuðu, markvissu úrtaki og íslensku samhengi; lagt er til að framtíðarrannsóknir sannreyni niðurstöður með blönduðum aðferðum og stærra þýði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Birkir Einar Björnsson 1993-
- Bjarki Sæþórsson 1992-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52132
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52132