Back to results

Bifröst University

Samvinna neyðarstjórna og almannavarna höfuðborgarsvæðisins í heimsfaraldri: Hverning tókst að halda utan um viðbrögð og tryggja öryggi íbúa?

Abstract

dc:description.abstract

Heimsfaraldur COVID-19 reyndi á stjórnsýslu og neyðarviðbragðskerfi um allan heim. Á höfuðborgarsvæðinu á Íslandi mættust tvö stjórnsýslustig – ríkið og sveitarfélögin – í sameiginlegu almannavarnakerfi þar sem Almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins (AHS) og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins (SHS) gegndu lykilhlutverki. Markmið rannsóknarinnar er að greina hvernig samvinna neyðarstjórna sveitarfélaganna og almannavarna á höfuðborgarsvæðinu tókst í heimsfaraldrinum og hvernig stjórnsýslan hélt utan um viðbrögð til að tryggja öryggi íbúa. Rannsóknarspurningin er: Hvernig tókst samvinna neyðarstjórna og almannavarna á höfuðborgarsvæðinu í heimsfaraldri COVID-19 að halda utan um viðbrögð og tryggja öryggi íbúa? Beitt er eigindlegri tilviksrannsókn þar sem unnið er með ýmis skjöl, svo sem fundargerðir, leiðbeiningar og skýrslur ásamt þremur hálfstöðluðum viðtölum við lykilaðila innan AHS og SHS. Niðurstöður eru settar í fræðilegt samhengi fjölþættrar stjórnsýslu og norrænna viðbragða við COVID-19. Helstu niðurstöður sýna að sameiginlegt stjórnkerfi AHS og SHS studdi við samræmda ákvarðanatöku sveitarfélaganna, sérstaklega hvað varðar skóla- og velferðarþjónustu, fjöldabólusetningar og vernd viðkvæmra hópa. Stuttar boðleiðir, traust og skipulögð upplýsingamiðlun voru meginstyrkleikar kerfisins og gerðu sveitarfélögunum kleift að útfæra reglugerðir ríkisins með hliðsjón af staðbundnum aðstæðum. Á sama tíma komu fram veikleikar í reglugerðarferli ríkisins, skortur á formlegum rýnihópum frá vettvangi og hætta á upplýsingaóreiðu þegar utanaðkomandi aðilar fóru fram hjá samhæfingu AHS. Þá var álag á stjórnendur og lykilstarfsfólk langvarandi og undirstrikaði þörf fyrir markviss vaktakerfi og hvíldarstefnu í langvarandi neyðarverkefnum. Fræðilegt framlag ritgerðarinnar felst í því að varpa ljósi á hvernig sameiginlegt almannavarnakerfi sveitarfélaga getur virkað sem brú milli ríkisvalds og nærþjónustu í heimsfaraldri, í samhengi norrænnar stjórnskipunar. Hagnýtar ályktanir lúta að því að styrkja hlutverk sveitarfélaga í reglugerðarferli, festa innviði AHS og SHS í sessi og efla kerfisbundna vernd mannauðs í almannavörnum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Margrét Rabasca Brynjarsdóttir 1998-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52122
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52122

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Margrét Rabasca Brynjarsdóttir 1998-. Samvinna neyðarstjórna og almannavarna höfuðborgarsvæðisins í heimsfaraldri: Hverning tókst að halda utan um viðbrögð og tryggja öryggi íbúa?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52122