Bifröst University
Lean og þjónandi forysta. Samspil virðingar, ábyrgðar og umbóta í nútímastjórnun
Abstract
dc:description.abstractÚtdráttur - Markmið rannsóknarinnar er að skoða hvernig þjónandi forysta getur stutt við þátttöku starfsfólks og hvernig sú þátttaka tengist farsælli innleiðingu Lean Management eða annarra sambærilegra stjórnunareftirlitskerfa. Rannsóknin byggir á blönduðu rannsóknarsniði þar sem annars vegar voru tekin hálfopin viðtöl við fjóra einstaklinga úr ólíkum geirum atvinnulífsins og hins vegar var framkvæmd rafræn spurningakönnun með svörum 36 þátttakenda á íslenskum vinnumarkaði. Með þessari samsetningu var leitast við að tengja fræðilega umræðu um þjónandi forystu og Lean við raunverulega reynslu starfsfólks og stjórnenda. Niðurstöðurnar benda til þess að þjónandi forysta og Lean hugmyndafræðin séu ekki aðskildar nálganir, heldur tvær hliðar á sama peningi. Þjónandi forysta veitir Lean mannlega og siðferðilega undirstöðu með áherslu á traust, einlæga hlustun, valdeflingu og skýra ábyrgð, á meðan Lean veitir kerfisbundinn ramma utan um ferla og stöðugar umbætur. Þar sem þjónandi forysta er viðhöfð virðist þátttaka starfsfólks, skuldbinding og starfsánægja aukast, sem styður við sjálfbæra umbótamenningu og betri rekstrarlegan árangur. Rannsóknin hefur bæði fræðilegt og hagnýtt gildi. Fræðilega dýpkar hún skilning á samspili mannauðsmiðaðrar forystu og ferlastjórnunar og undirstrikar mikilvægi þátttöku starfsfólks sem brúar á milli þjónandi forystu og Lean. Hagnýtt getur hún nýst stjórnendum sem vilja byggja upp skipulagsheildir þar sem fólk og ferlar ganga í takt og þar sem þjónandi gildi og Lean-hugsun styðja hvort annað í nafni árangurs, velferðar og stöðugra umbóta.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóhannes Hjálmar Smárason 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 10Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52121
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52121