Back to results

Bifröst University

Gervigreind í markaðssetningu: Hvert er viðhorf neytenda til markaðstengds efnis sem framleitt er með aðstoð gervigreindar?

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf neytenda til markaðstengds efnis sem framleitt er með aðstoð gervigreindar, með sérstaka áherslu á þekkingu, traust og siðferðisleg álitamál. Rannsóknin byggðist bæði á megindlegri spurningakönnun og eigindlegum viðtölum við sérfræðinga í markaðs- og auglýsingagerð. Viðtölin sýndu fram á að gervigreind sé helst notuð við textagerð en í minna mæli við sjónræna framleiðslu. Sérfræðingarnir lýstu því að gervigreind skorti oft „hjartað“ og að efni geti orðið mengað af erlendum blæ sem samræmist ekki íslenskum markaði. Spurningakönnunin leiddi í ljós að neytendur eru orðnir meðvitaðir um vaxandi notkun á gervigreind í markaðssetningu en gera þó oft ekki greinarmun á manngerðu efni og efni sem framleitt er með aðstoð gervigreindar. Traust til gervigreindar er takmarkað, sérstaklega þegar kemur að persónuvernd og meðferð gagna og meirihluti þátttakenda hefur áhyggjur af því að persónuupplýsingum sé safnað eða þeim misbeitt. Niðurstöður sýndu að viðhorf neytenda eru tvíþætt: Margir sjá hagkvæmni og þægindi í notkun gervigreindar en jafnframt vakna áhyggjur af skorti á mannlegri tengingu, mögulegri röskun á störfum og brotum á höfundarétti. Mikill meirihluti telur mikilvægt að efni sem framleitt er með aðstoð gervigreindar sé merkt sérstaklega, sem undirstrikar kröfu samfélagsins um aukið gagnsæi í markaðsstarfi. Heildarniðurstaða rannsóknarinnar er sú að neytendur séu jákvæðir gagnvart tækninni en séu þó varfærir. Vilji sé fyrir mannlegum þætti við gerð markaðsefnis og að siðferðisleg ábyrgð haldist í forgrunni. Gervigreind er því talin gagnlegt tól en ekki staðgengill mannlegrar sköpunar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sævar Sigfússon 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52115
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52115

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sævar Sigfússon 1990-. Gervigreind í markaðssetningu: Hvert er viðhorf neytenda til markaðstengds efnis sem framleitt er með aðstoð gervigreindar?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52115