Bifröst University
Framtíðarlýðræði: Hvort og þá hvernig getur gervigreind stutt við endurnýjun lýðræðis?
Abstract
dc:description.abstractUndanfarið hefur umræða um gervigreind og lýðræði orðið fyrirferðarmeiri, ekki síst í samhengi við gagnrýni á veikleika frjálslynds fulltrúalýðræðis. Í þessari ritgerð er spurt hvort og hvernig gervigreind geti stutt við endurnýjun lýðræðis. Hún er fræðileg heimildaritgerð byggð á lýðræðiskenningum, einkum hugmyndum um opið lýðræði og slembival, sem eru notaðar til að greina möguleika og takmarkanir gagnvart notkun gervigreindar í stjórnmálum. Á þessum grunni er sett upp sviðsmynd sem nefnd er Framtíðarlýðræði, þar sem lögð er áhersla á þátttökueflingu borgara og bein lýðræðisleg úrræði með nýrri stofnanauppbyggingu, meðal annars í formi borgaraþinga og slembivaldra ráða. Kannað er hvernig gervigreind, sérstaklega stór mállíkön, geta létt undir úrvinnslu flókinna mála, skýrt valkosti og styrkt rökræðu. Niðurstöðurnar benda til þess að gervigreind geti stutt við endurnýjun lýðræðis, að því tilskildu að hún sé hluti af kerfislægum breytingum á stofnanauppbyggingu samfélagsins. Hér er lagt til að gervigreindarkerfi séu hönnuð í almannaþágu, séu gagnsæ, rekjanleg og undir sjálfstæðu eftirliti og í nánu sambandi við lýðræðislegar stofnanir á borð við borgaraþing og slembivalin ráð. Við slík skilyrði getur gervigreind orðið eitt af þeim verkfærum sem gera Framtíðarlýðræði að raunhæfum möguleika.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Magnús Bakkmann Andrésson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52114
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52114