Bifröst University
Starfsánægja og þjónandi forysta. Hverjir eru helstu áhrifaþættir starfsánægju starfsmanna hjá Elkem Ísland?
Abstract
dc:description.abstractÞjónandi forysta hefur á undanförnum árum orðið sífellt meira áberandi í fræðum og stjórnun, þar sem áhersla er lögð á að setja þarfir starfsmanna í forgang og stuðla að jákvæðu vinnuumhverfi. Rannsóknir hafa sýnt að þjónandi forysta getur haft jákvæð áhrif á starfsánægju, skuldbindingu og árangur starfsmanna. Markmið þessarar rannsóknar er að greina helstu áhrifaþætti starfsánægju starfsmanna hjá Elkem Ísland, með hliðsjón af þjónandi forystu og OLA-líkaninu. Rannsóknin byggir á blandaðri aðferð. Megindleg gögn eru fengin úr starfsánægjukönnunum HR Monitor sem lagðar voru fyrir á árunum 2022-2024. Eigindleg gögn byggjast á hálfstöðluðu viðtali við mannauðsstjóra og þremur örviðtölum við starfsmenn úr ólíkum stafshópum. Þessi nálgun gerir kleift að greina bæði tölfræðileg mynstur og dýpri reynslu starfsmanna. Rannsóknarspurningin er: Hvaða þættir hafa áhrif á starfsánægju starfsmanna hjá Elkem Ísland? Undirspurningar snúa að almennri starfsánægju, mun á upplifun milli stjórnenda og almennra starfsmanna, tengslum við fræðilegar kenningar og hagnýtri nýtingu fyrir fyrirtækið. Rannsóknin á að leggja til nýja þekkingu um starfsánægju í krefjandi stóriðjuumhverfi og varpa ljósi á hvernig þjónandi forysta getur stutt við jákvæðan starfsanda. Niðurstöðurnar geta nýst Elkem Ísland við stefnumótun mannauðsmála og stuðlað að bættri líðan starfsmanna og auknu öryggi. Lykilorð: starfsánægja, þjónandi forysta, OLA líkanið, HR Monitor, Elkem Ísland
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Ásþór Sædal Birgisson 1975-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52105
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52105