Bifröst University
"Hvað ef enginn kemur til baka?" Fjölmiðlaumfjöllun um skriðurnar á Seyðisfirði 2020
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að auka skilning á því hvernig fjölmiðlar skrifa fréttir á áfallatímum og hvernig þeir tengjast inn í skilvirkari áfalla- og kríustjórnun með sínu hlutverki. Á sama tíma var lagt kapp á að draga fram hvort og þá hvaða áhrif fjölmiðlaumfjöllun hefði á þolendur áfalla. Til að afmarka verkefnið var tekin fyrir fjölmiðlaumfjöllun í kring um aurskriðurnar á Seyðisfirði í desember 2020. Tilgangur rannsóknarinnar var að draga fram lærdóm og finna út úr því hvað mætti betur fara upp á framtíðar áföll að gera, en einn af lykilþáttum áfallastjórnunar er lærdómur og hvernig samfélög nýta hann til að koma sterkari til baka og tilbúnari fyrir það ef að svipaður atburður kemur upp aftur. Vonast var til að sá lærdómur sem kæmi út frá þessari rannsókn myndi nýtast bæði viðbragðsaðilum og fjölmiðlum en samspil þessara tveggja hópa er gífurlega mikilvægt á krísutímum. Í rannsókninni voru notaðar blandaðar aðferðir eða bæði megindlegar og eigindlegar. Tvennskonar eigindlegar rannsóknir voru framkvæmdar annars vegar var um að ræða eigindlega innihaldsgreiningu þar sem að fréttir frá þremur vefmiðlum landsins, Rúv.is, Mbl.is og Vísir.is, á tímabilinu 17.-20. desember voru rýndar og innihald þeirra greint í þemu. Hins vegar var um viðtal við viðbragsaðila á staðnum að ræða en þar var lögð áhersla á aðkomu viðbragðsaðila að upplýsingagjöf og samskiptum við fjölmiðla. Viðtalið var hálf – opið þar sem rannsakandi fór inn í það með fáar fyrirfram ákveðnar spurningar en þær voru til þess gerðar að dýpka skilning, en viðmælandi fékk síðan að ráða ferðinni og greip rannsakandi boltann ef hann sagði eitthvað sem tengdist efninu og spurði nánar út í það og svo koll af kolli. Megindleg spurningarkönnun var svo lögð fyrir á netinu með það að markmiði að dýpka skilning á því hvernig fólk sér fyrir sér hlutverk fjölmiðla á áfallatímum og þá sérstaklega hvernig fólk upplifði umfjöllunina um skriðurnar á Seyðisfirði. Könnuninni var dreift á samfélagsmiðla og var opin frá 6. – 1. nóvember eða í tæpan mánuð. Niðurstöður rannsóknarinnar voru á þá leið að í heildina stóðu fjölmiðlar vörð um lykilhlutverk sitt þegar kom að því að tryggja gott upplýsingaflæði í atburðinum. Meirihluti þeirra sem komu að rannsókninni voru ánægðir með hvernig fjölmiðlar stóðu að málunum en 68% svarenda svaraði í spurningu um upplýsingagjöf að þeir væru almennt ánægðir með fjölmiðla og að greinargóðar upplýsingar hefðu verið settar út en 13,2% voru ekki jafn sammála því. Viðbragðsaðili sem talað var við og skýrslur sem hafa verið skoðaðar taka undir að í heildina hafi umfjöllun verið góð. Þrátt fyrir það kom fram ákveðin gagnrýni á fjölmiðla og viðbragðsaðila þegar kom að því að gleymst hefði að hugsa út í að hafa mikilvægar tilkynningar um ástandið á fleiri tungumálum en bara íslensku sem telst mikilvægt þar sem hluti íbúa á Seyðisfirði eru ekki með íslensku sem móðurmál. Niðurstöður sýndu einnig að fólk biðlar til fjölmiðla að sýna meiri nærgæti á erfiðum tímum, eðlilegt sé að vilja greina frá ástandinu en það verði að gerast í sátt og samlyndi við þá sem eru að upplifa áfallið á eigin skinni og fréttaflutningur og myndbirtingar megi ekki verða til þess að valda þolendum meiri og óþarfa sársauka. Lykilorð: Áfallastjórnun, fjölmiðlar, aurskriður, almannavarnir, Seyðisfjörður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Stefanía Hrund Guðmundsdóttir 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52100
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/52100