Back to results

Bifröst University

Hefur samkeppni á raforkumarkaði á Íslandi haft fjárhagslegan ávinning fyrir almenning?

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin fjallar um hvort aukin samkeppni á íslenskum smásölumarkaði raforku hafi skilað heimilum lægra rafmagnsverði, meira úrvali í vöru og þjónustu og hvaða þættir skýra þá þróun. Fræðilegi bakgrunnurinn byggir á kenningum í atvinnugreinahagfræði um gildi samkeppni, virkni markaða og hvata auk norrænnar reynslu af markaðsvæðingu raforku. Í aðferðafræðihlutanum eru notuð opin gögn frá Hagstofu Íslands, Umhverfis- og orkustofnun og raforkusölum. Framkvæmd er lýsandi greining á verðum og tilfærslum milli söluaðila, gerður samanburður við Norðurlönd og lykilhugtök þar á meðal IDN02303 og vísitala neysluverðs sett í mælanlegt form með skýrum mælikvörðum, tímabilum og útreikningum. Niðurstöðurnar benda til þess að samkeppni hafi aukist í formi fleiri söluaðila og tilboða en að ávinningur heimila sé misjafn eftir tímabilum og samsetningu gjaldskráa. Á nafnverði virðist verðmunur milli söluaðila oft takmarkaður á meðan vöru- og þjónustuval eykst. Þegar leiðrétt er fyrir vísitölu neysluverðs kemur fram sparnaður á ákveðnum tímabilum sem tengist einnig breytingum á undirliggjandi kostnaði. Þetta styður að þörf sé á markvissari upplýsingagjöf til neytenda, gagnsærri skilmálum og betri aðgengi að gögnum til að auðvelda samanburð auk reglulegs mats á áhrifum reglusetningar og innviða á verðmyndun (Hagstofa Íslands, 2025b). Lykilorð: Raforkumarkaður, samkeppni, raforkuverð, verðþróun, neytendaval.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vilhjálmur Darri Einarsson 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/52099
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/52099

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vilhjálmur Darri Einarsson 1991-. Hefur samkeppni á raforkumarkaði á Íslandi haft fjárhagslegan ávinning fyrir almenning?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/52099