Bifröst University
Konur í upptökustjórnun: Af hverju eru konur í miklum minnihluta meðal upptökustjóra?
Abstract
dc:description.abstractÞrátt fyrir verulegar framfarir í jafnréttismálum eru konur enn í afgerandi minnihluta í upptökustjórnun. Innan við fimm prósent upptökustjóra á Billboard Top 100 listanum eru konur og enn hefur engin kona hlotið Grammy-verðlaunin sem upptökustjóri ársins í popptónlist (Non-Classical). Þessi B.A. ritgerð leitast við að skýra hvers vegna svo fáar konur vinna í upptökustjórnun og hvort staðan á Íslandi, sem oft er álitið fyrirmyndarríki í jafnréttismálum, sé betri en annars staðar. Notast er við bæði eigindlegar og megindlegar aðferðir. Vegna skorts á fyrri rannsóknum voru tekin viðtöl við íslenska upptökustjóra og fagfólk í tónlist sem varpa ljósi á kerfisbundnar og menningarlegar hindranir. Auk þess var kynjahlutfall kortlagt og borið saman við erlendar tölur á þremur lykilsviðum íslensks tónlistarlífs: Tónlistanum, Íslensku tónlistarverðlaununum og Söngvakeppninni. Niðurstöður benda til þess að staðan sé nokkuð skárri á Íslandi samanborið við önnur lönd en þó er mikill kynjahalli til staðar. Helstu hindranir eru félagsmótun, skortur á aðgengi að tengslaneti og krefjandi starfsskilyrði tónlistariðnaðarins sem bitna frekar á konum en körlum. Rannsóknin undirstrikar að skortur kvenna í upptökustjórnun sé ekki óhjákvæmilegur heldur afleiðing rótgróinna menningarlegra og kerfislægra hindrana sem eru til staðar í þessum geira, bæði á Íslandi og á heimsvísu. Loks eru lagðar til leiðir til að sporna við kynjahallanum á borð við handleiðsluverkefni, aukinn sýnileika kvenupptökustjóra og stofnanalegan stuðning.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helena Sif Gunnarsdóttir 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51655
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51655