Bifröst University
Lagaumhverfi sýndareigna: Hvernig falla sýndareignir að gildandi íslenskum rétti og ESB regluverki og er þörf á lagabreytingu til að tryggja viðeigandi neytenda- og fjárfestavernd?
Abstract
dc:description.abstractVeruleg aukning viðskipta með sýndareignir á síðastliðnum árum hefur haft í för með sér lagalega óvissu, einkum varðandi réttarstöðu þeirra aðila sem stunda viðskipti með slíkar eignir, sérstaklega með tilliti til neytenda- og fjárfestaverndar. Í íslenskum lögum hafa sýndareignir verið skilgreindar sem hvers konar verðmæti á stafrænu formi sem hægt er að nota sem greiðslu, fjárfestingu og miðla milli aðila, að því tilskildu að þær teljist hvorki til rafeyris skv.lögum nr. 17/2013 né til gjaldmiðils sem gefinn er út af seðlabanka eða öðrum stjórnvöldum. Markmið höfundar er að greina hvernig sýndareignir falla að gildandi rétti og nýtilkominni reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2023/1114 um markaði fyrir sýndareignir (MiCA) og hvort sú lagaumgjörð tryggi viðeigandi neytenda- og fjárfestavernd. Helstu niðurstöður benda til að neytenda- og fjárfestavernd viðskipta með sýndareignir sé verulega takmörkuð samkvæmt íslenskum rétti. Þótt tilteknar eignategundir falli að hluta undir núgildandi lagabálka skortir bæði heildstæða löggjöf og réttarframkvæmd sem veiti skýra leiðsögn um réttaráhrif slíkra viðskipta. Innleiðing MiCA, sem byggir á tæknilega hlutlausri nálgun og miðar að því að draga úr réttaróvissu á þessu sviði, telst mikilvægt skref í átt að samræmdri og skýrri lagalegri meðferð slíkra viðskipta. Þrátt fyrir það verður að telja nauðsynlegt að tryggja að innleiðing hennar verði studd viðeigandi innlendum lagabreytingum, svo unnt sé að tryggja skýra afmörkun, raunhæfa neytenda- og fjárfestavernd og markvissar stjórnsýslu- og eftirlitsheimildir innan íslensks réttar. Að öðrum kosti munu gloppur og óvissa halda áfram að grafa undan réttaröryggi aðila á þessum vaxandi markaði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hrefna Sif Gunnarsdóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51652
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51652