Bifröst University
Verslunarhættir íslenskra neytenda þegar kemur að netverslun og hefðbundinni verslun
Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er sjónum beint að neytendahegðun íslenskra neytenda með sérstakri áherslu á val þeirra á milli netverslana og hefðbundinna verslana. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvaða hvatar liggja að baki val þeirra á verslunarleið. Eru íslenskir neytendur að hallast meira að netverslunum eða eru hefðbundnar búðir enn að ná að halda sínum velli? Viðfangsefnið er mikilvægt í ljósi aukinna tæknibreytinga og sífellt hraðari vexti netverslana á Íslandi sem og erlendis ásamt því hvernig kaupvenjur hafa breyst í takt við stafræna þróun og auknar væntingar neytenda um hraða og þægindi. Ritgerðin byggir á fræðilegri umfjöllun um neytendahegðun, kaupákvörðunarferlið, netverslanir, hefðbundnar verslanir og þá hvata sem móta val verslunarleiða. Sérstök áhersla er lögð á tvær tegundir hvata. Annars vegar nytsemishvata, til dæmis aðgengi, tímasparnaður og verð og hins vegar nautnahvata, t.d. þjónusta og upplifun. Leitast verður við að svara hvaða hvatar liggja að baki vali íslenskra neytenda á netverslun annars vegar og hefðbundinni verslun hins vegar. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem spurningakönnun var lögð fyrir 209 þátttakendur. Niðurstöður leiddu í ljós að neytendur sækja að jafnaði meira í netverslun þegar áherslan er lögð á aðgengi, þægindi og verðsamanburð en kjósa hefðbundnar verslanir þegar þeir vilja fá persónulega ráðgjöf, mannleg samskipti eða að geta snert og prófað vöruna. Á heildina litið virðist val á verslunarleið byggjast á þeim þörfum sem neytandinn leitast við að uppfylla hverju sinni. Það undirstrikar mikilvægi þess að verslanir, stafrænar sem hefðbundnar, hugi að fjölbreyttum hvötum í stefnumótun sinni ásamt því að skapa fjölbreyttar og sérsniðnar lausnir til að mæta ólíkum þörfum neytenda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Angelique D. Mastache Pétursdóttir 1994-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/51370
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/51370