Bifröst University
Í skugga Stasi: Líf og lífsbarátta Helgu Novak í Austur-Þýskalandi
Abstract
dc:description.abstractÁgrip Viðfangsefni þessarar ritgerðar er ævi Helgu Maríu Novak, ljóðskálds og rithöfundar, sem fæddist og ólst upp í Austur-Þýskalandi, en átti síðar djúp tengsl við Ísland sem bæði íslenskur ríkisborgari og vegna fjölskyldutengsla. Fjallað er um persónulega reynslu hennar og sjálfsmynd í ljósi pólitísks og samfélagslegs umróts í Austur-Þýskalandi á árum kalda stríðsins, og sjónum beint að samstarfi hennar við Stasi, öryggislögreglu ríkisins. Leitast er við að varpa ljósi á hvort Helga hafi haft raunverulegt val eða verið þvinguð inn í samstarfið og hvort og þá hvernig reynsla hennar á uppvaxtarárum hafi haft áhrif þar á. Í því skyni eru notaðar heimildir á borð við persónuleg bréf, samtöl, skáldævisögur Helgu og nýjustu rannsóknir stjórnmála- og sagnfræðinga á austur-þýsku samfélagi. Í ritgerðinni er dregin upp mynd af Helgu sem einstaklingi í stöðugri togstreitu milli eigin tilvistarlegrar samvisku og ytri krafna samfélags og ríkisvalds. Fjallað er um hvernig hún mótaðist af útilokun, höfnun, eftirliti og var sífellt að reyna að tilheyra. Sýnt er fram á hvernig saga hennar endurspeglar þá margslungnu og oft ósýnilegu spennu sem fylgir því að lifa í alræðisríki, þar sem andóf, tortryggni, samvinna og aðlögun fléttast saman á flókinn hátt.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðrún Lilja Magnúsdóttir 1973-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50962
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50962