Bifröst University
Hvernig hefur innleiðing MiCA-löggjafar áhrif á vernd íslenskra fjárfesta?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að greina hvernig innleiðing MiCA-reglugerðarinnar (e. Markets in Crypto-Assets Regulation) hefur áhrif á vernd íslenskra fjárfesta sem stunda viðskipti með sýndareignir. Sýndareignir hafa á síðustu árum hlotið vaxandi útbreiðslu, en þróun regluverks og eftirlits hefur ekki haldist í hendur við þessa aukningu. Íslenskt réttarumhverfi hefur hingað til einkennst af óljósum reglum, takmörkuðu eftirliti og skorti á sértækri fjárfestavernd á markaði með sýndareignir. Rannsóknin byggist á lögfræðilegri greiningu og samanburði á gildandi íslenskum rétti og ákvæðum MiCA-reglugerðarinnar. Fjallað er um þróun sýndareigna og reglusetningar á evrópskum vettvangi, markmið og gildissvið MiCA, og hvernig reglugerðin bætir upplýsingaskyldu, eftirlit, ábyrgð þjónustuveitenda og úrræði fyrir fjárfesta. Þá eru bornar saman þær skyldur sem hvíla á þjónustuveitendum á hefðbundnum fjármálamarkaði samkvæmt MiFID II og þær sem MiCA kveður á um, og mat lagt á hvort jafnræði sé tryggt. Helstu niðurstöður eru þær að innleiðing MiCA mun leiða til marktækrar styrkingar á fjárfestavernd á markaði með sýndareignir. Skýrari reglur um upplýsingagjöf, leyfisskyldu þjónustuaðila og bætt úrræði gegn misferli styrkja réttarstöðu fjárfesta. Þá leggur reglugerðin grunn að samræmdu evrópsku regluverki sem dregur úr óvissu og eykur traust á markaðnum. Á sama tíma er bent á að takmarkanir séu á gildissviði reglugerðarinnar, og að áfram sé þörf á sértækri útfærslu regluverks til að mæta þeim áhættuþáttum. Ritgerðin hefur bæði fræðilegt og hagnýtt gildi og varpar ljósi á mikilvægi þess að tryggja jafnræði og öryggi fjárfesta á nýjum, tæknidrifnum mörkuðum. Niðurstöðurnar styðja við það mat að MiCA-reglugerðin sé stórt skref í átt að bættri fjárfestavernd á Íslandi og innan EES.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Eyþór Pétursson 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50908
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50908