Back to results

Bifröst University

Hvernig birtist jafnvægið milli réttinda brotaþola og sakbornings í íslensku réttarkerfi, með hliðsjón af 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem dómstólar túlka meginregluna um hraða málsmeðferð?

Abstract

dc:description.abstract

Ágrip Í þessari ritgerð er fjallað um jafnvægið milli réttinda brotaþola og sakbornings í íslensku réttarkerfi með áherslu á meginregluna um hraða málsmeðferð. Ritgerðin byggir á greiningu á 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar og 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, auk viðeigandi ákvæða í lögum um meðferð sakamála og almennum hegningarlögum. Kannað er hvernig þessi meginregla hefur verið túlkuð í íslenskri dómaframkvæmd og hvernig tafir á málsmeðferð geta haft áhrif á niðurstöður dóma, þar á meðal með tilliti til refsilækkunar, skilorðsbundinna refsinga, fyrningar og jafnvel niðurfellingar mála. Í ritgerðinni er lögð sérstök áhersla á það hvernig dómstólar meta hvort brotið hafi verið gegn reglum um málshraða og hvernig slík brot geta haft áhrif á réttindi beggja aðila máls. Fjallað er um tiltekna dóma sem varpa ljósi á hvernig sjónarmið brotaþola og sakbornings vegast á í framkvæmd og hvort réttarkerfið tryggi jafnræði þeirra. Sérstök umfjöllun er einnig um réttindi brotaþola í kynferðisbrotamálum og aðgerðaráætlanir stjórnvalda. Auk dómaframkvæmdar eru greindar þær áskoranir sem felast í því að tryggja bæði sanngirni og skilvirkni við málsmeðferð sakamála, og áhrif þess á réttaröryggi. Fjallað er um hvernig umfang og eðli mála hefur áhrif á mat á því hvað telst hæfilegur tími til afgreiðslu þeirra, og bent er á mikilvægi þess að stjórnvöld og dómstólar uppfylli þær skyldur sem á þeim hvíla samkvæmt lögum og alþjóðlegum skuldbindingum. Að lokum verða lagðar fram tillögur til úrbóta í þeim tilgangi að styrkja réttarstöðu brotaþola án þess að réttindi sakbornings séu skert.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Guðríður Björgvinsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50896
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50896

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðríður Björgvinsdóttir 1979-. Hvernig birtist jafnvægið milli réttinda brotaþola og sakbornings í íslensku réttarkerfi, með hliðsjón af 1. mgr. 70. gr. stjórnarskrárinnar, 1. mgr. 6. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu, þar sem dómstólar túlka meginregluna um hraða málsmeðferð?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50896