Back to results

Bifröst University

Hvernig hafa yfirtökur og samrunar tæknifyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi haft áhrif á arðsemi og rekstrarhagkvæmni þeirra?

Abstract

dc:description.abstract

Sjávarútvegstæknigeirinn á Íslandi hefur undanfarna áratugi tekið miklum breytingum með tilkomu tækninýjunga og aukinnar sjálfvirkni. Fyrirtæki á borð við Marel, Valka og Curio hafa verið í fararbroddi í þessari þróun og leikið lykilhlutverk í alþjóðlegri framþróun fiskvinnslutækni. Samhliða þessari tæknivæðingu hefur yfirtökum og samrunum fjölgað, þar sem fyrirtæki leitast við að styrkja stöðu sína á markaði, tryggja aðgang að sérfræðiþekkingu og ná fram stærðarhagkvæmni. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á reynslu stjórnenda í íslenskum tæknifyrirtækjum í sjávarútvegi af yfirtökum og samruna, með áherslu á áhrif slíkra aðgerða á rekstrarhagkvæmni, arðsemi og samkeppnisstöðu fyrirtækjanna. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferð og viðtölum við stjórnendur sem komið hafa að slíkum viðskiptum. Sérstaklega er litið til nýjustu yfirtökunnar þegar JBT keypti Marel, til að greina samlegðaráhrif og áhættuþætti. Niðurstöður rannsóknarinnar varpa ljósi á stefnumótun fyrirtækja innan greinarinnar og benda til þess að yfirtökur hafi bæði skapað tækifæri til vaxtar og nýsköpunar, en einnig falið í sér áskoranir tengdar samþættingu, stjórnun og markaðsþróun. Rannsóknin hefur bæði fræðilegt og hagnýtt gildi og veitir dýpri skilning á því hvernig tæknifyrirtæki aðlaga sig í síbreytilegu samkeppnisumhverfi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hrannar Baldvinsson 1977-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/50849
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/50849

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hrannar Baldvinsson 1977-. Hvernig hafa yfirtökur og samrunar tæknifyrirtækja í íslenskum sjávarútvegi haft áhrif á arðsemi og rekstrarhagkvæmni þeirra?. 2025. https://hdl.handle.net/1946/50849