Bifröst University
Innflutningur hunda. Samræmast íslenskar reglur meðalhófsreglu EES-réttarins?
Abstract
dc:description.abstractMarkmið ritgerðarinnar er að meta hvort íslenskar reglur um innflutning hunda samræmist meðalhófsreglu EES-réttarins. Í ljósi undanþágu Íslands frá ákvæðum viðauka I við EES-samninginn hafa íslensk stjórnvöld viðhaldið íþyngjandi skilyrðum um einangrun og takmarkanir á flutningi hunda til landsins. Meðalhófsreglan hefur tekið verulegum breytingum í dómaframkvæmd Evrópu- og EFTA-dómstóla og í dag eru gerðar ríkari kröfur til gagnsæis, málefnalegra röksemda og beitingu vægari úrræða ef mögulegt er. Í ritgerðinni er fræðilegri lögfræðilegri aðferð (e. doctrinal method) beitt þar sem greindar eru bæði evrópskar og íslenskar réttarheimildir, dómaframkvæmd og fræðileg skrif. Einnig eru sjónarmið sérfræðinga og hagaðila nýtt í ritgerðinni til að dýpka skilning á framkvæmd reglna og áhrifum þeirra í reynd. Þá er tekið mið af framkvæmd í Færeyjum sem nær fram sambærilegum markmiðum og Ísland setur sér varðandi verndun náttúru- og dýraheilbrigðis með vægari aðferðum. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að íslenskt regluverk feli í sér takmarkanir sem að hluta til ganga lengra en meðalhófsregla EES-réttar heimilar, sbr. dóma EFTA-dómstólsins í málum E-5/23 og E-17/15. Þá vekur skortur á gagnsæi og málsmeðferð einnig upp álitamál um samræmi við fjórfrelsið. Þrátt fyrir lögmæt markmið um dýraheilbrigði og náttúruvernd verður að gæta að réttaröryggi, skilvirkni og velferð dýra í framkvæmd. Vísindaleg gögn í formi áhættumats styðja möguleika á vægari útfærslu án þess að rýra sóttvarnir. Niðurstaðan er því sú að íslenskt regluverk þarfnist endurskoðunar með tilliti til meðalhófs, þróunar réttarframkvæmdar og þjóðréttarlegra skuldbindinga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Hugrún Diljá Þorgeirsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/50696
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/50696