Back to results

Bifröst University

Andleg líðan foreldra krabbameinssjúkra barna og vinnumarkaðurinn

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna áhrif starfsumhverfis og stuðnings á líðan foreldra krabbameinssjúkra barna á Íslandi. Sérstaklega var litið til þess hvort sveigjanleiki í starfi væri mismunandi milli opinbera geirans og einkageirans, hvort kyn foreldra hefði áhrif á upplifun þeirra af sveigjanleika á vinnustað og hvort sálræn aðstoð hefði áhrif á andlega líðan foreldra. Rannsóknin byggði á megindlegri aðferðafræði og gögnum sem safnað var með rafrænni spurningakönnun meðal foreldra sem skráðir voru hjá Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Ekki var marktækur munur á því hvort að foreldrar sem störfuðu í opinbera geiranum upplifðu meiri stuðning og sveigjanleika í starfi en þeir sem störfuðu í einkageiranum, þó að fjarvinna væri algengari í einkageiranum. Konur voru líklegri en karlar til að taka að sér umönnunarhlutverk og greindu frekar frá kvíða tengdum heimilisábyrgð, á meðan karlar upplifðu meiri fjárhagslega streitu. Foreldrar sem nýttu sér sálræna aðstoð mátu almennt andlega líðan sína betri en þeir sem ekki gerðu það, þó tengslin væru ekki marktæk. Takmarkanir rannsóknarinnar, einkum lítið svarhlutfall, drógu úr alhæfingargildi niðurstaðna.Rannsóknin leggur áherslu á mikilvægi sveigjanleika á vinnustað, heildræns stuðnings og aðgengilegrar sálrænnar aðstoðar fyrir foreldra krabbameinssjúkra barna. Niðurstöðurnar eru gagnlegar fyrir vinnuveitendur, stjórnvöld og stuðningsaðila sem vilja bæta lífsgæði þessa hóps.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rúna Sævarsdóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49217
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49217

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rúna Sævarsdóttir 1985-. Andleg líðan foreldra krabbameinssjúkra barna og vinnumarkaðurinn. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49217