Abstract
dc:description.abstractMikil aukning hefur verið á ferðamönnum hér á landi á síðustu árum en rúmlega 2,2 milljónir manna heimsóttu Ísland árið 2023. Rúm 93% þeirra sem komu voru ferðamenn í þeim eina tilgangi að fara í frí. Ljóst er að mikil þörf er á afþreyingu fyrir allan þennan fjölda. Tölur frá Ferðamálastofu sýna að gestir dvelja hér á landi að meðaltali í 7 nætur og því má áætla að flestir séu búnir að skipuleggja ferðir sínar fyrirfram. Með fjölgun ferðamanna eykst samkeppni innan ferðaþjónustunnar og því er mikilvægt nú sem aldrei fyrr að fyrirtæki aðgreini sig til að ná til viðskiptavina sinna, þar er sjótengd ferðaþjónusta engin undantekning. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig markaðsmálum sjótengdra ferðaþjónustufyrirtækja er háttað og greina hvort vannýtt tækifæri séu til staðar í markaðsstarfi þeirra samanborið við kenningar innan markaðsfræðinnar. Notast er við eigindlegar rannsóknaraðferðir sem byggja á viðtölum við markaðsstjóra sex sjótengdra ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi. Í fræðilegri yfirferð verkefnisins er fjallað um helstu kenningar sem lúta að markaðssetningu og sölu á vörum og þjónustu. Einnig verður fjallað um kenningar sem miða að markaðssetningu upplifana og þjónustu sem á vel við þegar fjallað er um sjótengda ferðaþjónustu. Rannsóknaraðferðinni er gerð skil sem og hvernig þýði rannsóknar var nálgast. Takmörkunum rannsóknarinnar útlistað og hvernig rannsakandi er meðvitaður um tengingu sína við viðfangsefnið. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að vannýtt tækifæri eru til staðar í markaðssetningu sjótengdra ferðaþjónustufyrirtækja. Fyrirtækin eru í flestum tilfellum að sinna góðu starfi og virðast vera meðvituð um kenningar markaðsfræðinnar en víða leynast tækifæri til að standa enn betur að málum en gert er.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Mattías Þorgrímsson 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49203
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49203