Back to results

Bifröst University

Loppuland Krísustjórnunaráætlun - Mikilvægi krísustjórnunaráætlana og gerð þeirra

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð er gerð krísustjórnunaráætlun fyrir íslenska fyrirtækið Loppuland sem sérhæfir sig í sölu á gæludýravörum. Markmiðið er að útbúa krísustjórnunaráætlun sem veitir fyrirtækinu skýrar leiðbeiningar til að bregðast við krísum og koma í veg fyrir eða lágmarka skaða sem slík atvik geta valdið. Einnig er markmiðið að sýna fram á mikilvægi fyrirbyggjandi aðgerða og undirbúnings fyrir krísur í öllum tegundum skipulagsheilda. Í ritgerðinni er unnið með mismunandi tegundir krísa svo sem slys á fólki, slæma meðferð á dýrum, neikvæða orðræðu á samfélagsmiðlum, truflanir á aðfangakeðju og þjófnaði í verslun. Aðferðir krísustjórnunar byggja á fræðilegum kenningum og viðurkenndum viðbragðsferlum sem eru aðlagaðir að íslensku viðskiptalífi og rekstrarumhverfi fyrirtækisins. Verkefnið var unnið með hliðsjón af Situational Crisis Communication Theory (SCCT) og byggir á því að flokka krísur eftir eðli þeirra til að tryggja árangursríkar aðgerðir. Auk þess voru gerðar tillögur að forvörnum, samskiptastefnum og viðbragðsáætlunum til að hjálpa Loppulandi að takast á við ófyrirséð atvik á árangursríkan hátt. Niðurstöður ritgerðarinnar sýna að með góðum undirbúningi og skýrum verkferlum er hægt að draga verulega úr neikvæðum áhrifum krísu, viðhalda trausti hagsmunaaðila og endurbyggja orðspor fyrirtækisins eftir áfall. Áætlunin sem hér er lögð fram getur þannig nýst sem fyrirmynd fyrir önnur fyrirtæki sem vilja efla eigin viðbúnað gagnvart mögulegum krísum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Stefanía Fanndís Björgvinsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49195
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49195

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Stefanía Fanndís Björgvinsdóttir 1991-. Loppuland Krísustjórnunaráætlun - Mikilvægi krísustjórnunaráætlana og gerð þeirra. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49195