Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknar er að meta hverskonar myndbandsauglýsingar hafi mest áhrif á neytendur og að athuga hvort upplifun neytenda hafi breyst með þróun samfélagsmiðla. Rannsóknin byggir á fyrri rannsóknum (Baima o.fl., 2024; Garganas, 2024: Lee og Yoon, 2024). Notast var við megindlega og eigindlega rannsóknaraðferð við gerð hennar. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að síbreytilegt nútímaumhverfi og þróun samfélagsmiðla hafa haft áhrif á þolinmæði neytenda og kröfur þeirra gagnvart myndbandsauglýsingum. Innihald og gerð þeirra þurfa að vera stutt, hnitmiðuð, skilaboðin skýr og koma hratt og örugglega fram. Tilfinningar líkt og gleði og húmor eru einnig lykilþættir í myndbandsauglýsingum. Notkun áhrifavalda sýna einnig fram á traust neytenda til þeirra og trúverðugleika fremur en þegar fyrirtæki eiga í hlut. Niðurstöður rannsóknarinnar benda einnig til þess að markaðsfólk þurfi að aðlaga sig að síbreytilegu umhverfi og að aldur og mismunandi miðlar hafi áhrif á upplifun neytenda.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jórunn Lára Ólafsdóttir 1998-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49194
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49194