Abstract
dc:description.abstractGríðarlega mörg fyrirtæki nýta sér stafræna tækni í þeim tilgangi að auglýsa sig, hvort sem það er í gegnum einfaldar stafrænar auglýsingar, áhrifavaldamarkaðssetningu, markpósta og margt fleira. Miðlar á borð við Vísi, MBL, Fótbolti.net og fleiri stóla á fjármagn frá fyrirtækjum sem auglýsa sig á miðlum þeirra. Stórir samfélagsmiðlar notast við gagnaöflun og auglýsa beint til þeirra sem tilheyra ákveðnum markhópi. Nú þegar fyrstu kynslóðir eru að fullorðnast sem þekkja ekki heiminn án internets og margir hverjir án þess að hafa ofurtölvu í vasanum er áhugavert að sjá hver þeirra sýn á stafrænum auglýsingum er, hvort þau raunverulega taka mark á þeim og jafnvel hvort þau yfirhöfuð taki eftir stafrænum auglýsingum. Þessi rannsókn hefur það markmið að veita innsýn í huga ungmenna á aldrinum 18-25 ára og sýna fram á hve sýn þeirra er á stafrænum auglýsingum. Rannsóknarspurningin er „Hvernig er eftirtekt ungmenna á stafrænum auglýsingum?“. Rannsóknin er framkvæmd með eigindlegri nálgun þar sem rætt var við ungmenni á aldrinum 18-25 ára um þeirra reynslu af stafrænum auglýsingum með tilliti til eftirtekt þeirra á stafrænum auglýsingum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram nokkuð litla eftirtekt gagnvart stafrænum auglýsingum og mun meiri á þær stafrænar auglýsingar sem nýta sér vafrakökur og persónulegar upplýsingar um notendur. Rannsóknin sýnir einnig að þetta er í raun ákveðinn staðall fyrir ungmenni í dag sem segir til um að fyrir stafrænar auglýsingar að stýra kauphegðun á einhvern hátt þá er það nauðsynlegt að fyrirtæki séu með skýra framtíðarsýn. Framtíð stafrænna auglýsinga er vandvirk gagnaöflun, rétt staðsettar og tímasettar auglýsingar. Rannsóknin nýtist markaðsfólki með því að veita þeim upplýsingar um stöðu núverandi stafrænna auglýsinga, skoðanir ungmenna á stafrænum auglýsingum, sýna fram á hvað má betur fara og hvað framtíðin ber í skauti sér.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Daði Helgason 2001-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 7Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49193
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49193