Back to results

Bifröst University

Innkoma Prís á íslenskan dagvörumarkað

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð verður farið yfir og rannsakað hver möguleg áhrif opnun á dagvöruversluninni Prís mun hafa á íslenskan markað. Rannsakendur fóru yfir gögn sem söfnuð voru af ASÍ í helstu verslunum á markaðinum. Gögnin innihéldu vöruverð yfir tímabilið júlí – september 2024 frá fimm helstu verslunum á dagvörumarkaði: Prís, Krónan, Bónus, Nettó og Hagkaup. Prís opnaði hér á landi í ágúst sama ár og því vildu rannsakendur sjá vöruverð verslananna mánuð áður en Prís opnaði, mánuðinn sem opnunin var og mánuð eftir opnun. Með því að skoða og rýna í gögnin vildu rannsakendur athuga hvort breytingar hefðu átt sér stað á verðlagi í helstu verslunum á dagvörumarkaði vegna opnunar á nýrri verslun. Einnig var send út spurningakönnun þar sem að rannsakendur vildu fá að heyra frá neytendum og hvað þeim finnst um opnun nýrrar verslunar. Notast var við megindlega rannsóknaraðferðir við gagnaöflun bæði þegar kemur að gögnum frá ASÍ og gögn sem fengin voru úr niðurstöðum spurningakannarinnar. Til þess að dýpka skilning rannsakenda á efninu voru tekin tvö viðtöl við sérfræðinga á sviði dagvörumarkaðs og verður notast við munnlegar heimildir úr þeim viðtölum. Rannsóknarspurningin sem leitað er svara í þessu verkefni hljóðar svo: „Hvaða áhrif hefur innkoma Prís á verðlag og samkeppnisaðstæður á íslenskum dagvörumarkaði?“ Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að meðalverð lækkaði hjá Nettó, Hagkaupum og Krónunni á milli mánaða frá júlí til ágúst að meðaltali um 2,59% en hjá Bónus hækkaði meðalverðið frá júlí til ágúst um 2,74%. Frá ágúst til september lækkaði meðalverðið aftur hjá Nettó og Krónunni að meðaltali um 2,16% en Bónus og Hagkaupum hækkaði meðalverðið var um 2,63%. Meðalverð Prís lækkaði einnig frá því að þau opnuðu og þar til teknar voru aftur tölur í september um 4,13%. Í spurningakönnuninni sem að rannsakendur lögðu fram voru 752 þátttakendur og þar af voru 462 sem sögðust þegar hafa verslað við Prís eða um 61,44% þátttakenda.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Nína Björk Grétarsdóttir 1998-
  • Sveinn Fannar Daníelsson 1993-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49189
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49189

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Nína Björk Grétarsdóttir 1998-; Sveinn Fannar Daníelsson 1993-. Innkoma Prís á íslenskan dagvörumarkað. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49189