Bifröst University
Vörumerkjatryggð: Rannsókn á fartölvuvörumerkjum. Ánægja, traust, tregða og skuldbinding
Abstract
dc:description.abstractHraðar tækniframfarir eiga sér stað í dag, fartölvuframleiðendur keppast um að koma með nýja tækni á markað í þeirri von um að auka samkeppnisforskot sitt. Neytendur hafa fleiri valkosti þegar kemur að fartölvum sem hefur áhrif á vörumerkjatryggð þeirra við fartölvuvörumerki. Vörumerkjatryggð hefur í gegnum tíðina verið mikilvægur þáttur í markaðsfræði og er talin vera lykilþáttur í að byggja upp langtíma viðskiptasamband við viðskiptavini. Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða áhrif ánægju, traust, tregðu og skuldbindingar á vörumerkjatryggð á fartölvuvörumerkjum. Rannsóknarspurning verkefnisins var því „Hver eru áhrif ánægju, trausts, tregðu og skuldbindingar á vörumerkjatryggð fartölvuvörumerkja?“. Til að komast að niðurstöðum var stuðst við megindlega rannsóknaraðferð. Spurningakönnun var lögð fyrir neytendur hér á landi og alls fengust 114 svör úr henni. Gögn voru greind og fjögur aðhvarfslíkön voru framkvæmd til þess að kanna áhrifaþætti breytnanna á vörumerkjatryggð. Niðurstöður leiddu í ljós að ánægja, traust, tregða og skuldbinding hafa allar marktæk jákvæð áhrif á vörumerkjatryggð. Skuldbinding og tregða voru áhrifaríkustu þættirnir á vörumerkjatryggð. Ánægja og traust fylgdu þar á eftir. Fyrirtæki ættu því að leggja aukna áherslu á að byggja upp skuldbindingu og auka tregðu meðal neytenda. Lykilorð: Vörumerki, vörumerkjatryggð, ánægja, traust, tregða, skuldbinding
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Brynjar Örn Sigurðsson 1993-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49181
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49181