Bifröst University
Gervigreind & markaðsstörf: Hvernig hafa íslensk fyrirtæki nýtt ChatGPT við markaðsstörf og hver er ávinningur þess?
Abstract
dc:description.abstractRannsókn þessi varpar ljósi á hvernig íslensk fyrirtæki hafa nýtt sér ChatGPT í markaðsstarfi og hvaða ávinningur fylgir þessari tækni. Við gagnaöflun var notast við hálfopin viðtöl við fimm markaðsstjóra og lykil starfsmenn úr ólíkum atvinnugreinum, þar sem leitast var við að safna dýpri innsýn í upplifun og reynslu þeirra af gervigreindarverkfærum. Niðurstöður sýna að notkun ChatGPT hefur í mörgum tilvikum leitt til aukinnar skilvirkni, tímasparnaðar og betri nýtingu á markaðsfé og þá sérstaklega í einfaldari verkefnum eins og textasköpun, hugmyndavinnu og sjálfvirkum samskiptum við viðskiptavini. Notendur benda á að gervigreind geti dregið úr þörf fyrir utanaðkomandi sérfræðiaðstoð sem veitir aukinn sveigjanleika og sparnað í markaðsstarfi. Hins vegar ber einnig á áskorunum og þá sérstaklega hvað varðar að tryggja að innihald sé í samræmi við ímynd og menningu vörumerkisins. Mannleg þátttaka er áfram gríðarlega mikilvæg til að hámarka árangur og viðhalda persónulegum samskiptum við viðskiptavini. Rannsóknin gefur til kynna að með réttum aðferðum og fræðslu getur ChatGPT stuðlað að hagræðingu og nýsköpun í markaðssetningu á Íslandi en kallar jafnframt á ábyrgð og siðferðislega meðvitund við innleiðingu til að tryggja langtíma árangur og traust.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Scott Snorri Riendeau 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49173
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49173