Bifröst University
„Íþróttir fyrir öll: Hvernig getur íþróttahreyfingin og samfélagið hvatt til aukinnar þátttöku innflytjenda og barna af erlendum uppruna í skipulögðu íþróttastarfi?“
Abstract
dc:description.abstractMarkmið lokaverkefnis er að kanna ástæður fyrir dræmari þátttöku barna af erlendum uppruna og innflytjenda í skipulögðu íþróttastarfi í Reykjavík. Rannsóknarspurningin leitast við að svara því hvort aðgengi, efnahagslegar áskoranir, félagslegur stuðningur eða menningarlegur munur hafi áhrif á þátttöku þessara barna í íþróttum. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og viðtöl tekin við lykilaðila innan íþróttahreyfingarinnar, sveitarfélaga og opinberrar þjónustu til að fá dýpri innsýn í viðfangsefnið. Niðurstöður benda til þess að skortur á tengslaneti, menningarmunur og fjárhagslegar hindranir dragi úr aðgengi barna með erlendan bakgrunn að íþróttum. Sumir foreldrar koma til dæmis frá löndum þar sem hefð skipulagðs íþróttastarfs er ekki eins sterk og á Íslandi og skilja ekki gildi þess. Einnig kom fram að margir foreldrar upplifa óöryggi gagnvart tungumálinu og þurfa aðstoð þegar kemur að skráningu hjá íþróttafélögunum. Viðmælendur töldu að aukið samstarf milli sveitarfélaga og íþróttafélaga, ásamt fjölmenningarfræðslu fyrir þjálfara, starfsfólk og foreldra, gæti aukið inngildingu og þátttöku. Fjárhagslegur stuðningur og ráðning menningarfulltrúa milli íþróttafélaga og stofnana gætu jafnframt bætt aðgengi og stuðlað að jafnrétti í íþróttastarfi.Með þessum aðgerðum væri hægt að draga úr félagslegri einangrun barna með erlendan bakgrunn og stuðlað að aukinni þátttöku. Slíkar breytingar gætu einnig styrkt félagslega tengslamyndun og sjálfstraust barna, sem stuðlar að betri inngildingu í samfélaginu almennt. Lykilorð: Börn, íþróttir, skipulagt íþróttastarf, börn af erlendum uppruna, innflytjendur fjölmenning, inngilding, þátttaka, aðgengi
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Linda Laufdal 1974-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/49159
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/49159