Back to results

Bifröst University

Aftur til fortíðar; með menningarminjum Kvennaskólans í Reykjavík

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari rannsókn er fjallað um hvernig greina megi á milli hversdagslegra hluta, rusls og menningarsögulegra verðmæta og hvaða hlutverki opinbert regluverk gegnir þegar kemur að vinnu annarra en safna þegar unnið er með óskráðan safnkost. Niðurstöður benda til að samstarf ólíkra aðila, skráning og upplýsingaöflun séu lykilþættir í því að ákvarða hvaða munir teljast til menningararfs. Einnig er ljóst að þegar hlutir eru teknir úr sínu upphaflega samhengi og settir í nýtt samhengi geta þeir öðlast nýja merkingu og aukið verðmæti. Sú skráningarvinna sem hefur átt sér stað á áður óskráðum safnkosti Kvennaskólans í Reykjavík er þungamiðja í þessari rannsókn og sýnir hvernig munir sem áður voru taldir rusl urðu að menningarverðmætum með ítarlegri rannsóknar- og skráningarvinnu. Þar kom í ljós að skortur á opinberum leiðbeiningum og regluverki getur haft neikvæð áhrif á afdrif óskráðs safnkosts sem ekki er þegar í höndum safna. Rannsóknin staðfestir einnig að menningararfur er ekki fastur eða óbreytanlegur, heldur háður skilgreiningu, samhengi og túlkun. Hún dregur fram mikilvægi samvinnu ýmissa aðila þegar unnið er með möguleg menningarverðmæti, sem og þörfina fyrir markvissari leiðbeiningar og reglugerðir á þessu sviði. Þannig veitir hún mikilvægt framlag til umræðunnar um menningararf og hlutverk hans í nútímasamfélagi.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Rakel Tanja Bjarnadóttir 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49149
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/49149

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Rakel Tanja Bjarnadóttir 1985-. Aftur til fortíðar; með menningarminjum Kvennaskólans í Reykjavík. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49149