Abstract
dc:description.abstractÍ rannsókn þessari er leitast er við að svara því hvernig skipulagsbreytingar parast við mismunandi líkön breytingastjórnunar og hvernig það hefur áhrif á starfsánægju. Breytingar hjá fyrirtækinu VHE eru teknar til skoðunar þar sem einu sviði er skipt upp í tvær deildir. Engin formleg aðferð er notuð til að innleiða breytingarnar en ADKAR líkanið er nýtt sem stuðningsgagn. Það er 5 skrefa líkan sem hægt er að fylgja í breytingum og auka þannig líkur á að breytingar takist. Rannsóknarspurningin verkefnisins er „Hvernig falla aðferðir við innleiðingu á breytingum VHE við hin ýmsu líkön breytingastjórnunar og hvernig hefur það áhrif á starfsánægju?“. Við gagnaöflun er notuð blönduð aðferð og stuðningsgögn. Eigindlegi hlutinn er viðtalsrannsókn við alla sjö stjórnendur sviðsins og megindlegi hlutinn er rafræn spurningakönnun til starfsfólks. Niðurstöður rannsakanda eru þær að breytingarnar parast ekki fullkomlega að neinu líkani, nema þá kannski þriggja þrepa líkani Lewin vegna einfaldleika þess. Þegar kemur að ánægju starfsfólks virðist það í heildina á litið mjög ánægt með breytingarnar sem eru að eiga sér stað. Ástæður þess virðast vera breytingastjórnun sviðsstjóra, óánægja með núverandi ástand og væntingar um persónulegan ávinning sem gæti fylgt breytingunum. Ánægja starfsfólks og stjórnenda er slík að erfitt að er að tengja tilfinningar þeirra við fyrri rannsóknir og líkön breytingastjórnunar. Óánægjuþættir starfsfólks parast við ADKAR líkanið og átta þrepa líkan Fernandez og Rainey. Rannsakandi mælir þó með því að ADKAR líkanið verði nýtt sem formleg innleiðingaraðferð þar sem nokkur tenging er við líkanið, óánægjuþættir starfsfólks falla undir það og sviðsstjóri hefur notað það sem stuðningsgagn hingað til. Lykilhugtök: Breytingastjórnun, skipting, starfsánægja, mátun, líkön
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Karitas Valgeirsdóttir 1995-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/48292
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/48292