Back to results

Bifröst University

Einkenni leiðtoga í fjölskyldureknum ferðaþjónustufyrirtækjum á Norðurlandi og áhrif þeirra á framlag

Abstract

dc:description.abstract

Ferðaþjónustan er hratt vaxandi atvinnugrein og henni fylgir mikið álag á fyrirtæki og starfsmenn þess. Ferðaþjónustufyrirtæki þurfa að reiða sig töluvert á starfsmenn sína til þess að halda flæði fyrirtækisins gangandi og þurfa leiðtogar því að meta og hlúa að þeim. Tilgangur rannsóknarinnar er að skoða hvort að fjölskyldurekin ferðaþjónustufyrirtæki á Norðurlandi einkennist af þjónandi forystu eða foreldraræði, skoða hver einkenni þjónandi forystu eru innan slíkra fyrirtækja og sjá áhrif stjórnunar á framlag starfsmanna. Þjónandi forysta er mikilvæg sýn á forystu sem segir að leiðtogi eigi fyrst og fremst að þjóna þeim sem fylgja honum. Í rannsókninni var stuðst við eigindlega viðtalsaðferð og tekin voru fimm viðtöl við starfsmenn sem allir störfuðu innan fjölskyldurekinna ferðaþjónustufyrirtækja. Helstu niðurstöður voru þær að þau einkenni þjónandi forystu sem voru sýnilegust voru virðing og traust við starfsfólk, gott fordæmi stjórnenda, góð sambönd og samskipti, samvinna og ábyrgð en einnig mátti sjá einkenni foreldraræðis í stjórnunarháttum fyrirtækjanna. Stjórnun hafði áhrif á suma þátttakendur rannsóknarinnar en ekki alla, og skipti þá mestu máli að það væri komið vel fram við þá.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Margrét Árnadóttir 1999-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/48286
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/48286

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Margrét Árnadóttir 1999-. Einkenni leiðtoga í fjölskyldureknum ferðaþjónustufyrirtækjum á Norðurlandi og áhrif þeirra á framlag. 2024. http://hdl.handle.net/1946/48286