Bifröst University
Framsækni og fegurð : aðdráttarafl íslenskra þjónustu framleiðslufyrirtækja fyrir erlend kvikmyndaframleiðslufyrirtæki
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um samvinnu erlendra kvikmynda framleiðslufyrirtækja og íslenskra þjónustu framleiðslufyrirtækja. Með því að spyrja sig að því hvaða þróun innan íslenska þjónustu framleiðsluiðnaðarins hefur ýtt undir aukna framleiðslu á erlendu kvikmynda- og sjónvarpsþáttaefni á Íslandi. Rýnt var í þá eiginleika sem Ísland hefur upp á að bjóða sem tökustaður, helstu kosti og ógnir sem stafa að þjónustu framleiðslu kvikmyndaiðnaðarins ásamt helstu áhrifaþáttum líkt og mörkun áfangastaða (e. destination branding), hnattvæðingu (e. globalization), tengslum við íslenska ferðaiðnaðinn og fjárhagsstuðning frá íslenska ríkinu. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð, þar sem tekin voru þrjú hálf opin viðtöl við íslensku þjónustu framleiðendurna Einar S. Þórðarson, Finna Jóhannsson og Rafnar Hermannson. Niðurstöður rannsóknar sýndu með skýrum hætti að erlendar kvikmyndaframleiðslur eru hvað helst að sækjast í íslenska náttúru og landslag ásamt endurgreiðslu til kvikmyndagerðar þegar þær koma til landsins og nýta sér Ísland sem tökustað og þar með þjónustu íslenskra þjónustu framleiðslufyrirtækja. Þar á eftir eru erlendar kvikmyndaframleiðslur einnig að leitast eftir reynslunni sem íslenski kvikmyndaiðnaðurinn og þjónustu framleiðsluiðnaðurinn býr að. Niðurstöður rannsóknar sýna einnig að ferðaþjónustu iðnaðurinn og þjónustu framleiðsluiðnaðurinn er farin að skarast á við hvorn annan og nauðsynlegt sé að finna lausn á slíkum árekstrum, til að samspil þessara tveggja iðnaða geti verið sjálfbært og árangursríkt. Lykilorð ritgerðar: Íslenski kvikmyndaiðnaðurinn, íslensk þjónustu framleiðslufyrirtæki, þjónustu framleiðsla, endurgreiðsla til kvikmyndagerðar, náttúra Íslands, íslenski ferðaþjónustuiðnaðurinn.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Monika Rögnvaldsdóttir 1997-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46349
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46349