Back to results

Bifröst University

Lagasetning til bráðabirgða sem snýr að umhverfisvænum bifreiðum með tilliti til áhrifa þeirra á neytendur og stjórnvöld

Abstract

dc:description.abstract

Ítrekaðar lagabreytingar hafa átt sér í stað á ári hverju síðustu misseri. Töluverð óþægindi hafa ríkt á meðal neytenda, lögaðila sem og innflutningsaðila og hefur reynst þeim erfitt að áætla kaup á umhverfisvænum bifreiðum vegna ófyrirsjáanleika sem hefur myndast vegna lagasetningar á lögum til bráðabirgða trekk í trekk. Bæði löggjafinn og stjórnvöld hafa reynt að sjá fyrir þróun orkuskiptanna en slíkt hefur ekki verið einfalt þar sem fá fordæmi búa að baki. Áhrifin sem þetta hefur valdið er ákveðin óvissa fyrir neytendur og óvissa hvað sé framundan. Löggjafinn hefur verið meðvitaður um slíkt og unnið að því framlengja lagaákvæðunum lengur en til eins árs, með málefnaleg löggjafarsjónarmið í huga ásamt hagsmunum stjórnvalda og neytenda. Ekki síður hafa markmið stjórnvalda spilað inn í lagasetninguna en stjórnvöld stefna á að ná 130 þúsund skráðum bifreiðum á götum Íslands svo að fullum orkuskiptum sé náð á fólksbifreiðum. Helsta niðurstaða lokaritgerðarinnar er sú að löggjafinn hafi notast við skýr og málefnaleg löggjafarsjónarmið við gerð XXIV. kafla vskl. á borð við að greiða neytendum aðgang að umhverfisvænum bifreiðum og lækka kaupverð þeirra ásamt því að ná háleitum markmiðum stjórnvalda í orkuskiptunum á Samgöngum hérlendis. Gallinn er hins vegar sá að lagaákvæði XXIV. kafla vskl. hafa oftast verið til bráðabirgða þar sem erfitt hefur verið fyrir löggjafann að sjá nákvæmlega fyrir hvað framtíðin og orkuskiptin bera nákvæmlega í skauti sér á sama tíma og hann hefur þurft að gæta þess að niðurgreiða ekki um of vegna tekjuþarfa ríkisins. Af því gefnu hafi myndast ákveðin óvissa með tímanum hvað skyldi gerast næst. Þá hefur lagasetningin gengið fyrst og fremst út á að ná markmiðum stjórnvalda um orkuskipti. Að því sögðu hafa þó störf löggjafans og þessar ítrekuðu breytingar sem snúa að ívilnunum umhverfisvænna bifreiða verið heilt yfir til samræmis góðum lagasetningarviðmiðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helgi Ragnar Gunnarsson 1995-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46333
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46333

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helgi Ragnar Gunnarsson 1995-. Lagasetning til bráðabirgða sem snýr að umhverfisvænum bifreiðum með tilliti til áhrifa þeirra á neytendur og stjórnvöld. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46333