Bifröst University
Nýir sjóndeildarhringir og tækifæri : gervigreind og markaðssetning í íslensku viðskiptalífi
Abstract
dc:description.abstractÞetta verkefni fjallar um samspil gervigreindar og markaðsstarfa. Rannsakað var hvert íslensk fyrirtæki væru komin markvisst í notkun gervigreindar í markaðsstarfi. Um er að ræða eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við sérfræðinga á fræðasviðinu og starfandi markaðsstjóra íslenskra fyrirtækja. Rannsóknarspurningin sem leitast var við að svara og var þar af leiðandi til viðmiðunar við framkvæmd rannsóknarinnar var: „Hversu langt eru íslensk fyrirtæki komin í notkun gervigreindar markvisst í markaðsstarfi?“ Fræðilegur bakrunnur rannsóknarinnar tekur til annars vegar fræðagrunns markaðsfræðarinnar og hins vegar fræðagrunns gervigreindarinnar. Í fræðagrunni markaðsfræðinnar má finna umfjöllun um markaðsráðana, vörumerki, markaðsrannsóknir, miðaða markaðssetningu, neytendahegðun, stafræna markaðssetningu, samfélagsmiðla og Agile markaðssetningu. Í fræðagrunni gervigreindarinnar má meðal annars finna umfjöllun um vélnám, kosti og áskoranir gervigreindar í markaðslegum tilgangi og almennt um gervigreind út frá markaðslegu sjónarhorni. Fjallað er um fyrri rannsóknir á viðfangsefninu og niðurstöður þeirra notaðar sem leiðarljós við gerð spurningalista fyrir eigindlega rannsókn. Helstu niðurstöður eru þær að íslensk fyrirtæki eru á frumstigi við að innleiða gervigreind inn í markaðsstefnu sína. Þó það sé vitund og örlítil notkun gervigreindartóla, sérstaklega í markaðssetningu á netinu, er nýtingin ekki að fullu markviss eða stefnumótandi. Skilningur á gervigreind hjá fyrirtækjum er breytilegur og mörg eru ekki að nýta alla möguleika sem gervigreindartækni býður uppá, eins og skapandi gervigreind til textagerðar og hugmyndavinnu. Skilningur og þekking á gervigreind er enn á byrjunarstigi og þörf er á frekari fræðslu innan fyrirtækja til að vera samkeppnishæf í þessu breytilega landslagi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Authors dc:creator
-
- Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir 1997-
- Guðríður Sunna Erlingsdóttir 1985-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46322
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46322