Back to results

Bifröst University

Hver er framtíð þjónustustarfs í verslunum? Með tilkomu sjálfsafgreiðslu

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerð þessi fjallar um hver framtíð þjónustustarfs er vegna tilkomu sjálfsafgreiðslu í verslunum. Gífurleg aukning hefur verið á sjálfsafgreiðslu út um land allt og mikil umræða hefur skapast í samfélaginu að þjónustustörf séu að fjara út. Því ákvað rannsakandi að framkvæma megindlega og eigindlega rannsókn. Viðtöl voru tekin við þrjá stjórnendur í verslunum sem hafa innleitt sjálfsafgreiðslu þar sem spurt var út í framtíð þjónustustarfs, hver þróunin verður í framtíðinni og vinnuskipulag starfsfólks. Einnig var sent út spurningakönnun á Facebook þar sem 171 þátttakendur tóku þátt. Þar var spurt út í viðhorf sjálfsafgreiðslu og hvernig þátttakendur litu á þessa þróun sem á sér stað. Niðurstöður ritgerðarinnar eru þær að mikil aukning hefur verið á sjálfsafgreiðslu og miklar breytingar hafa verið í verslun. Þessar breytingar og þróanir munu ekki minnka heldur bara verða meiri og meiri. Stjórnendur verslana vilja aðeins vera með þessar sjálfsafgreiðslulausnir til að bæta upplifun viðskiptavina og gefa þeim fleiri valmöguleika í sinni verslunarferð. Þó að umræða samfélagsins segir að þjónustustörf séu að fjara út að þá eru stjórnendur ekki sammála og verða þjónustustörf alltaf mikilvæg bara í breyttri mynd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Thelma Tara Jeannotsdóttir 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/46320
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/46320

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Thelma Tara Jeannotsdóttir 1997-. Hver er framtíð þjónustustarfs í verslunum? Með tilkomu sjálfsafgreiðslu. 2024. http://hdl.handle.net/1946/46320