Abstract
dc:description.abstractRannsóknin snýr að því að kanna hver hugsanlegur ávinningur væri fyrir Samkaup að innleiða stefnumiðaða stjórnun viðskiptatengsla eða CRM (e. customer relationship management) Stefnumiðuð stjórnun viðskiptatengsla snýr að því að fyrirtæki afli sér upplýsinga um viðskiptavini sína og reyni að kynnast þeim betur, greina þær upplýsingar til þess að geta þjónustað og fullnægt þörfum viðskiptavina betur og stýra markaðsefni betur á rétta markhópa. Mikil tækniþróun hefur átt sér stað í dag og eru markaðsumhverfi og upplýsingatækni sífellt að breytast. Er nauðsynlegt fyrir fyrirtæki að þróa sína stefnu og þjónustu í takt við það. Til þess að reyna komast nær því hver hugsanlegur ávinningur væri fyrir Samkaup að innleiða stefnumiðaða stjórnun viðskiptatengsla væri, framkvæmdi rannsakandi blandaða rannsóknar aðferð sem notast við eigindlega og megindlega rannsóknir sem fólust í því að taka viðtal við fimm stjórnendur og starfsfólk þjónustuborðs Samkaupa ásamt því að send var út spurningarkönnun á samfélagsmiðilinn Facebook til þess að reyna að fá meiri sýn í vonir og væntingar væntanlega viðskiptavina með því að spyrja um nokkra útvalda þætti sem tengjast stefnumiðaðri stjórnun viðskiptatengsla í matvöruverslun. Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að það sé mikill áhugi fyrir því að innleiða CRM og einnig kom í ljós að CRM kaupmennsku hugsunin er algjörlega til staðar nú þegar. Mikill vilji er að þjónusta viðskiptavini enn betur með því að þekkja viðskiptavinina betur. Væri hægt að kynnast viðskiptamanna hópnum enn betur og ná að einblína meira niður á einstaka hópa frekar en niður á einstaklinga miðað við sýn viðmælenda. Samkaup finnur fyrir þörfinn að vera með áherslur og þjónustu í takt við tímann og þó svo að engin CRM stefna sé til staðar að þessu sinni er CRM hugsunin algjörlega í gangi í daglegu starfi í búðunum. Þær sem þjónusta sína fasta kúnna og vita hvað hann vill. Samkaup er með mörg verkfæri og tækifæri til þess að innleiða CRM í framtíðinni og er það von og trú rannsakanda að CRM verði innleitt á næstu árum og vonar rannsakandi að þessi rannsókn gæti hjálpað stjórnendum og hagaðilum að sjá ávinninginn í því að innleiða CRM hugmyndafræðina innan Samkaupa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jón Eyberg Helgason 1986-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/46312
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/46312