Back to results

Bifröst University

Hver eru mörk löglegrar samvinnu og ólöglegrar verðstýringar aðila með hliðsjón af 12. gr. samkeppnislaga?

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerð þessari er leitast við að skoða hvar mörkin liggja á milli samvinnu innan samtaka fyrirtækja með sérstaka áherslu á verðlagsmál, sem telst lögleg og hvenær samvinnan brýtur gegn 12.gr., sbr. 10.gr. samkeppnislaga. Hugtök í samkeppnisrétti eru ekki alltaf í fullu samræmi við venjubundinn skilning fólks. Þannig má nefna að hugtakið fyrirtæki í samkeppnisrétti tekur til aðila með ákveðna fjárhagslega starfssemi, hvort sem það er óperusöngvari, félagasamtök eða hefðbundið fyrirtæki. Að sama skapi eru samtök fyrirtækja öll þau samtök aðila sem uppfylla skilyrði til að teljast fyrirtæki í skilningi samkeppnislaga. Þannig er í ritgerðinni vísað í að Knattspyrnusamband Evrópu var í senn talið vera samtök samtaka fyrirtækja, samtök fyrirtækja og fyrirtæki í skilningi samkeppnisréttar. Í ritgerðinni er stuðst við fjölmargar ákvarðanir íslenskra samkeppnisyfirvalda ásamt evrópskri dómaframkvæmd. Þá er stuðst við skrif bæði innlendra og erlendra fræðimanna á sviði samkeppnisréttar. Niðurstöður ritgerðarinnar eru nokkuð skýrar hvað varðar mörk löglegrar samvinnu og ólöglegri verðstýringu aðila. Ef sú samvinna er ekki sérstaklega leyfð, þá er hún bönnuð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Pétur Fannar Gíslason 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4592
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4592

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Pétur Fannar Gíslason 1979-. Hver eru mörk löglegrar samvinnu og ólöglegrar verðstýringar aðila með hliðsjón af 12. gr. samkeppnislaga?. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4592