Back to results

Bifröst University

Rafbílavæðing á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Orkuskipti í samgöngum er mikilvæg aðgerð til að sporna við hlýnun jarðar en með því að fara úr bensín- og díselbílum yfir í hreinan rafbíl mun það draga verulegu úr magni koldíoxíðs (CO2) sem fer út í andrúmsloftið. Tilgangur þessa verkefnis var að kanna hversu vel stjórnvöld hérlendis eru að standa að undirbúningi að á nýskráðum bensín- og díselbílum og hvað þau þurfa að leggja áherslu á. Til þess að geta framfylgt banni á nýskráðum bensín- og díselbílum, þurfa neytendur að finna fyrir hvata að fjárfesta í rafbíl. Rannsóknaspurningin sem sett var fram er: Hvað þurfa stjórnvöld að leggja áherslu á, vegna fyrirhugaðs banns á nýskráningu bensín- og díselbílum 2030? Til þess að svara rannsóknarspurningunni var framkvæmd bæði megindleg og eigindleg rannsókn. Tekin voru viðtöl við sex fyrirtæki og einn sérfræðing, einnig var spurningakönnun send út á samfélagsmiðla til þess að fá álit neytenda. Þegar niðurstöður úr báðum rannsóknum voru skoðaðar kom í ljós að margt var sameiginlegt í þeim. Rauði þráðurinn, sem og helstu niðurstöður, í gegnum verkefnið að margt bendir til þess að það vanti langtímaplan sem hægt sé að fylgja eftir. Ívilnanir eru mikilvægar til þess að gera rafbílinn efnahagslega samkeppnishæfan. Rafbílar eru dýrir í framleiðslu og innkaupum og ef að allar ívilnanir hætta í lok árs 2023 þá er ekki víst að bann við nýskráningu bensín- og díselbíla sé raunhæfur möguleiki í framkvæmd. Þá bendir einnig margt til að með uppbyggingu innviða og betri drægni rafbíla muni fleiri kjósa að fjárfesta í rafbíl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Særún Kristinsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 7

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45191
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45191

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Særún Kristinsdóttir 1982-. Rafbílavæðing á Íslandi. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45191