Back to results

Bifröst University

Hvar liggja hugsanleg markaðstækifæri til sölu á íslenskum sjávarafurðum í Norður Karólínu?

Abstract

dc:description.abstract

Viðfangsefni þessarar rannsóknar er að kanna hvort að hugsanleg markaðstækifæri séu til sölu á íslenskum sjávarafurðum í Norður Karólínu. Íslenskar sjávarafurðir eru þekktar fyrir að búa yfir einstökum gæðum og ferskleika. Lagt var upp með að rannsaka útflutning á íslenskum sjávarafurðum til Bandaríkjanna og á hvaða svæðum er helst verið að selja þær á í dag. Einnig skoðaði rannsakandi hvernig fiskneysla er yfirleitt í Norður Karólínu og hvaða tegundir sjávarafurða það eru helst sem verið er að neyta. Þá var gerð greining á hvort að vörumerkjaþekking sé til staðar á íslenskum sjávarafurðum eða hvort þyrfti að byggja hana upp frá grunni. Rannsakandi tók viðtöl við viðmælendur sem hafa reynslu á því sviði sem að rannsóknin miðar að, þ.e. aðilum sem að sjá um innkaup og sölu á sjávarafurðum til veitingahúsa og matvöruverslana á því svæði sem um ræðir með það markmið að fá innsýn á markaðinn. Einnig var send út spurningakönnun á hóp neytenda sem að býr á svæðinu og gat því gefið vissa mynd af því hvernig neysluvenjum þar er háttað. Niðurstöðurnar sem að komu út úr rannsókninni voru þær að helstu markaðstækifæri á íslenskum sjávarafurðum í Norður Karólínu væru í sölu á ferskum þorski og laxi. Ekki lágu fyrir nógu afgerandi gögn sem að bendi til þess að ráðast ætti í útflutning á íslenskum sjávarafurðum til Norður Karólínu án þess að leggjast fyrst í umfangsmeiri rannsóknarvinnu. Rannsakandi telur þó tilefni til að slíkt yrði gert þar sem að áhugi úrtaksins var þó nokkur en leggur til að byrjað væri á afmörkuðu svæði með smátt vöruúrval sem að ætti að vekja hvað mestan áhuga markhópsins miðað við niðurstöður rannsóknar. Með því væri hægt að brjóta sér leið inná markaðinn og efla ímynd og þekkingu á vörumerkisin og komast þá að nær því hvort arðbært væri að herja á stærri markað eða jafnvel stækka vöruúrval til útflutnings.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Lára Kristinsdóttir 1991-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45184
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45184

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Lára Kristinsdóttir 1991-. Hvar liggja hugsanleg markaðstækifæri til sölu á íslenskum sjávarafurðum í Norður Karólínu?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45184