Back to results

Bifröst University

Skattskyldur hagnaður fastrar starfsstöðvar

Abstract

dc:description.abstract

Í ritgerðinni er tekið fyrir að skoða hvaða reglur gilda á Íslandi um það sem varðar hvernig ákvarða skuli hagnað sem skuli úthluta til fastrar starfsstöðvar, sem starfrækt er hér á landi, af hálfu fyrirtækis sem er heimilisfast í öðru ríki innan OECD. Umfjöllun ritgerðarinnar fer yfir hvort tvísköttunarmódel OECD hafi verið innleitt hér sem skyldi, þ.e. hvort hin viðurkennda aðferð OECD (e. Authorized OECD approach) teljist gilda hérlendis, sem fjallar um hvernig ákvarða skuli hagnað fastrar starfsstöðvar. Færð eru rök fyrir því að framangreind aðferð AOA sé innleidd í íslensk lög. Felst það í því að föst starfsstöð telst skattalega sjálfstætt fyrirbæri, sbr. 4. tölul. 2. mgr. 3. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 (tsl.), en slíkt er forsenda fyrir beitingu á aðferð AOA, sem framkvæmd er í tveimur skrefum: Skref eitt felst í að framkvæma staðreynda- og virknigreiningu á hinu ímyndaða sjálfstæða fyrirtæki (föstu starfsstöðinni), en þar er borin kennsl á áhættu, eignum og innri viðskiptum milli hins ímyndaða sjálfstæða fyrirtækis (föstu starfssöðinnar) og erlenda fyrirtækisins sem í reynd starfrækir föstu starfsstöðina. Skref 2 felst síðan í því að verðmeta andlag þess sem greining í skrefi 1 leiddi fram. Var komist að þeirri niðurstöðu að skref 1 og 2 rúmast innan 57. gr. tsl., sbr. 3. gr. a tsl., en í ritgerðinni var talið að skref 1 mætti vera skýrara í íslenskum lögum, einkum til að samræma AOA reglur innan OECD.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Bjarki Heiðar Hildarson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45158
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45158

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Bjarki Heiðar Hildarson 1983-. Skattskyldur hagnaður fastrar starfsstöðvar. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45158