Back to results

Bifröst University

Í leit að samastað í tilverunni

Abstract

dc:description.abstract

Rannsókn þessi er eigindleg rannsókn á upplifun innflytjendakvenna af því að flytja til Íslands og hvernig þeim hefur tekist að aðlagast íslensku samfélagi. Markmið þessarar rannsóknar er konurnar fái tækifæri til að segja með eigin orðum frá upplifun sinni af því að búa hér á landi. Horft er til þess hvernig þeim tekst að aðlagast nýju samfélagi og menningu í nýju landi, helstu hindranna sem þær hafa þurft að yfirstíga og hvernig þær takast á við aðskilnað frá fjölskyldu og menningu heimalandsins. Í viðtölunum var lögð áhersla á að gefa konunum tækifæri til að segja frá upplifun sinni af því að flytja búferlum frá heimalandinu, þar sem huglægt mat þeirra var í fyrirrúmi en ekki atburðir eða einstakar persónur. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þátttakendur hafa að mörgu leiti svipaða upplifun af því að flytjast búferlum til Íslands, hver svo sem raunveruleg ástæða búferlaflutninganna var. Tungumálið og gott tengslanet hefur áhrif á sjálfsmyndina og hefur einnig áhrif á með hvaða hætti þeim tekst að aðlagast íslensku samfélagi. Áföll, aðskilnaður við fjölskyldu og vini í heimalandinu setur sitt mark á reynslu þeirra en með seiglu tekst þeim að yfirstíga margar erfiðar hindranir á lífsferlinum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir 1965-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45152
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45152

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hulda Ingibjörg Rafnarsdóttir 1965-. Í leit að samastað í tilverunni. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45152