Back to results

Bifröst University

Að UNNA tónlist

Abstract

dc:description.abstract

Hér greinir höfundur afstöðu fólks í íslenskum tónlistariðnaði til stafrænna tónlistartæknilausna og hvort tónlistartæknilausnin UNNA gæti nýst þeim markhópi. Höfundur veltir því fram því hvort til sé íslenskur hljómur í tónlist, sem tengist tilraun til að skilja hughrif tónlistar og áhrif umhverfis. Með þverfaglegri nálgun, reynslu, innihaldsgreiningu og eigindlegri rannsókn, sem fól í sér skoðanakönnun og viðtöl við fagaðila, greinir höfundur að hughrif þeirra sem hlusta á tónlist hefur verið gerð að hagrænni neyslu. Þau sem skapa hafa verið skilin eftir án upplýsingaflæðis til að takast á við flókin bakheim tónlistar með takmarkaðar leiðir til að afla sér tekna, verja réttindi sín og koma tónlist sinni á framfæri. Einnig er skýrt að stoðiðnaður tónlistar, þá sérstaklega á Íslandi, hefur verið vanræktur. Þörf er á tölulegum greiningum og stuðningi við innviði, sem áætlaðar eru samkvæmt skýrslum fagaðila og vinnuhópa, en skortur er á skýrum aðgerðaráætlunum. Niðurstaðan er sú að tónlist er persónuleg og hughrifin með djúpar rætur í umhverfi og upplifun. Neyslumynstur hefur breyst og tæknihlið tónlistar flókin og sérhæfð. Þörf er á miðlægu og gegnsæju kerfi og tæknilausn sem þjónar þeim sem skapa og þeim sem njóta tónlistar. Möguleiki er á að nýta sérstöðu íslenska markaðarins í tónlist og tækni og þar með íslensku tæknilausnina UNNA. Lykilorð: Tónlist, tækni, hughrif, hagkerfi, UNNA

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45149
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45149

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir 1984-. Að UNNA tónlist. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45149