Back to results

Bifröst University

„Fyrr eða síðar gerist það“ Krísusamskipti í netöryggiskrísum

Abstract

dc:description.abstract

„Heimur versnandi fer“ er stundum sagt og á það ágætlega við þegar kemur að netöryggiskrísum. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á það, hvaða ógnum íslenskar skipulagsheildir standa frammi fyrir þegar kemur að netöryggiskrísum. Ásamt því hvernig best sé að bregðast við slíkum krísum út frá krísusamskiptafræðum. Stuðst var við eigindlega rannsóknaraðferð. Tekin voru viðtöl við einstaklinga úr ólíkum áttum, sem eiga það sameiginlegt að fást við krísusamskipti eða netöryggiskrísur í sínu starfi. Leitast var við að fá þeirra innsýn í krísusamskipti í netöryggiskrísum til þess að sjá hvort einhver samsvörun ætti sér stað við krísusamskiptafræðin. Stuðst var við almenn krísusamskiptafræði þar sem lítið er til af efni sem hugar sérstaklega að krísusamskiptum í netöryggiskrísum. Niðurstöður þessarar rannsóknar leiddu í ljós, að skipulagsheildir hér á landi standa frammi fyrir ýmsum tæknilegum ógnum, s.s. DDoS og Phishing árásum. Slíkar árásir, líkt og flest allar árásir, geta haft verulegar afleiðingar fyrir hagaðila, rekstur skipulagsheilda og orðspor þeirra. Í sumum tilfellum geta slíkar árásir verið svo umfangsmiklar, að þær hafa áhrif á bæði samfélag og efnahag landsins. Það er þó ýmislegt sem skipulagsheildir hér á landi geta gert til þess að undirbúa sig, auk þess að vera meðvitaðar um hvaða atriði þarf að hafa í huga ef netöryggiskrísa skyldi eiga sér stað. Undirbúningur, þjálfun, æfing og fræðsla (innan og utan skipulagsheildarinnar), auk auðmýktar í krísusamskiptum, spila lykilhlutverk til að lágmarka hugsanlegan skaða sem netöryggiskrísur geta haft á hagaðila, rekstur og orðspor.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Júlíus Andri Þórðarson 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/45148
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/45148

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Júlíus Andri Þórðarson 1990-. „Fyrr eða síðar gerist það“ Krísusamskipti í netöryggiskrísum. 2023. http://hdl.handle.net/1946/45148