Back to results

Bifröst University

Standast gengistryggð lán ákvæði 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu

Abstract

dc:description.abstract

Í kjölfar hruns íslenska fjármálakerfisins hefur lögmæti þeirra gengistryggðu lána sem almenningi á Íslandi stóðu til boða hjá fjármálafyrirtækjum landsins verið dregið í efa. Lántakendur slíkra lána þurfa nú að standa skil á stökkbreyttum afborgunum þeirra sem eru mörgum hverjum ofviða. Það var því ákvörðun höfundar að kanna lögmæti slíkra lána með tilliti til ákvæða 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Fjallað er um tilurð laganna og tilgang fyrrnefndra ákvæða þeirra. Tilgangur ákvæðanna er m.a. að leggja blátt bann við því að skuldbindingar í íslenskum krónum séu bundnar dagsgengi erlendra gjaldmiðla. Þá var lagt mat á lögmæti lánasamninga og kaupleigusamninga sem útbúnir voru af nokkrum helstu fjármálafyrirtækjum landsins og þeir skoðaðir ítarlega. Við þetta mat voru þær reglur íslensks réttar, sem gilda um túlkun einhliða samningsskilmála, hafðar hér að leiðarljósi. Niðurstaða mín er sú að þeir lánasamningar, sem skoðaðir voru, brjóti ekki í bága við íslensk lög en lögmæti kaupleigusamninganna er hins vegar dregið stórlega í efa. Þessar ályktanir duga þó ekki til að komast að almennri niðurstöðu um lögmæti gengistryggðra lána þar sem sá fjöldi samninga, sem skoðaður var, er ekki tæmandi og því mögulegt að aðrir samningar, sem gerðir voru, hefðu getað leitt til annarrar niðurstöðu

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingvar Christiansen 1981-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/4498
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/4498

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingvar Christiansen 1981-. Standast gengistryggð lán ákvæði 13. gr. og 1. mgr. 14. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. 2010. http://hdl.handle.net/1946/4498