Back to results

Bifröst University

Nálgunarbann : uppfyllir Ísland skyldur 50. og 53. greinar Istanbúl samningsins um fullnægjandi vernd til handa þolendum?

Abstract

dc:description.abstract

Nálgunarbann. Uppfyllir Ísland skyldur 50. og 53. greinar Istanbúl samningsins um fullnægjandi vernd til handa þolendum? Samningur Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi gagnvart konum og heimilisofbeldi, svokallaður Istanbúl-samningur, var fullgiltur af hálfu Íslands árið 2018. Meðal markmiða samningsins er að setja fram heildarramma, stefnu og ráðstafanir til að vernda og aðstoða þolendur ofbeldis og heimilisofbeldis. Í 50. gr. Istanbúlsamningsins er gerð sú krafa að löggæslustofnanir hafi burði til að bregðast tafarlaust og á viðeigandi hátt við ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi, með lagasetningu eða öðrum hætti, þannig að þolendum sé samstundis veitt vernd. Í 53. gr. er gerð krafa um að unnt sé að grípa til nálgunarbanns eða annarra verndarráðstafana til verndar þolendum ofbeldis. Tilgangur með nálgunarbanni, er að sá sem um það sækir, njóti verndar og fái frið fyrir geranda. Í samfélagsumræðunni síðustu misseri hefur það vakið athygli, hversu litlar afleiðingar það virðist hafa þegar einstaklingur brýtur gegn nálgunarbanni og að úrræðaleysi valdi því að lögreglan og löggjafinn bregðast seint við. Ef afleiðingar þess að brjóta gegn nálgunarbanni eru engar, þá er verndin í raun ekki til staðar. Umkvartanir þolenda lýsa varnarleysi þeirra og úrræðaleysi lögreglu gagnvart ítrekuðum brotum án teljandi afleiðinga. Tilgangur þessarar ritgerðar er að rannsaka hvort Ísland uppfylli skuldbindingar Istanbúlsamningsins hvaða varðar nálgunarbann og tafarlausa vernd, sbr. 50. og 53. gr. samningsins. Niðurstaða ritgerðarinnar er sú, að íslensk stjórnvöld uppfylla ekki að fullu ákvæði 50. og 53. gr. Istanbúlsamningsins, um nálgunarbann og tafarlausa vernd.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Ósk Sigfinnsdóttir 1982-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43483
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43483

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Ósk Sigfinnsdóttir 1982-. Nálgunarbann : uppfyllir Ísland skyldur 50. og 53. greinar Istanbúl samningsins um fullnægjandi vernd til handa þolendum?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43483