Back to results

Bifröst University

Allar upplýsingar til staðar : nægir þá að birta þær?

Abstract

dc:description.abstract

Upplýsingaóreiða er mikið og vaxandi vandamál í nútímasamfélagi, þá sérstaklega á veraldarvefnum. Margir þekkja til hugtaksins í samhengi við falsfréttir og pólitískan málflutning, en upplýsingaóreiða er ekki síður mikil í heilsu- og lífstílstengdum upplýsingum – og getur gert einstaklingum erfitt fyrir að nálgast og nýta sér áreiðanlegar upplýsingar um næringu og mataræði til að hlúa að eigin heilsu. Upplýsingaóreiða er þess vegna lýðheilsuvandamál. Á Íslandi hefur Embætti landlæknis lengi gefið út ráðleggingar um mataræði sem byggja á öllum nýjustu rannsóknum á viðfangsefninu í heiminum. Í þessu verkefni var markmiðið að varpa ljósi á upplýsingaóreiðu um næringu og mataræði á íslenskum vef- og samfélagsmiðlum, greina stöðu Embættis landlæknis í óreiðunni og benda á möguleg tækifæri fyrir embættið að sækja fram í upplýsingamiðlun. Fræðilegur bakgrunnur verkefnisins gefur yfirlit yfir fyrri rannsóknir sem gerðar hafa verið á upplýsingaóreiðu og upplýsingaleit fólks, starfsemi embættis landlæknis og helstu áskoranir sem það stendur frammi fyrir hvað varðar upplýsingamiðlun. Einnig verður farið yfir ýmsar kenningar og hugtök sem tengjast viðfangsefninu. Gerð var innihaldsgreining á íslenskum Instagram reikningum sem höfðu næringu og mataræði sem aðalumfjöllunarefni. Samsvarandi innihaldsgreining var gerð á umfjöllun um næringu og mataræði á vinsælustu vefmiðlum Íslands. Einnig voru tekin viðtöl við tvo starfsmenn hjá embættinu. Með hliðsjón af þessu var gerð SVÓT greining til að bera kennsl á sóknarfæri. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna með skýrum hætti að mikið magn misgóðra upplýsinga um næringu og mataræði er til staðar á íslensku bæði á Instagram og helstu vefmiðlum. Jafnframt kom í ljós að Embætti landlæknis stendur afar höllum fæti í samanburðinum. Það eru ýmis tækifæri sem embættið hefur til sóknar en einnig eru miklar ógnir og veikleikar sem það stendur frammi fyrir. Þar ber helst að nefna afar breiðan markhóp sem gerir markvissa upplýsingamiðlun erfiða og svo takmarkað fjármagn sem leiðir af sér skort á starfsfólki með sérfræðiþekkingu í miðlun upplýsinga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ögmundur Ísak Ögmundsson 1997-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/43477
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/43477

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ögmundur Ísak Ögmundsson 1997-. Allar upplýsingar til staðar : nægir þá að birta þær?. 2023. http://hdl.handle.net/1946/43477