Bifröst University
Krísusamskipti á samfélagsmiðlum : möguleikar umboðsaðila farþegaskipa til krísusamskipta á samfélagsmiðlum
Abstract
dc:description.abstractFlest öll fyrirtæki lenda á einhverjum tímapunkti í krísu. Á þeim tímapunkti er mikilvægt að bregðast rétt og hratt við. Krísusamskipti eru ásamt þeim viðbrögðum sem gripið er í til að takast á við vandann mikilvæg. Einn möguleiki sem býðst í þeim aðstæðum er að nýta samfélagsmiðla. Þar má koma upplýsingum til hagaðila og bjóða upp á tvíhliða samtöl um vandann, hvort sem það er á opnum eða lokuðum vettvangi innan þess samfélagsmiðils sem er talinn ákjósanlegastur í hverju tilfelli fyrir sig. Tilgangur þessarar rannsóknar var að komast að því hvernig og þá hvaða möguleika umboðsaðilar farþegaskipa sem koma til Íslands hafa á notkun samfélagsmiðla þegar upp kemur krísa og hver sé hentugasti vettvangurinn. Í rannsókninni verða tekin dæmi um krísur sem sköpuðust í komum tveggja skipa til landsins sumarið 2021. Meginmarkmiðið er þó að horfa til þeirra krísa sem upp geta komið og sýna fram á mikilvægi þess að vera undirbúinn til að bregðast við þeim og leysa þær svo ekki hljótist mikill skaði af. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að það er afar mikilvægt fyrir skipulagsheildir að bregðast fljótt við vandamálum sem upp koma. Það er einnig mjög mikilvægt að vera vel undirbúinn þegar kemur að samskiptum og úrræðum sem leysa eiga málin. Dæmin sem nefnd eru í rannsókninni og niðurstöður viðtala rannsakanda við viðmælendur hennar sýna að ef ekki eru til skýrir verkferlar, ef vöntun er á samskipta og boðleiðum, ef ekki er til staðar hentugur vettvangur fyrir samskipti og ef greining á vandamálinu er ekki nægilega góð getur það leitt til krísu. Í verstu tilfellum, krísu ofan á krísu. Túlka má niðurstöður þannig að sá vettvangur sem myndi henta best til krísusamskipta er í dag samfélagsmiðillinn WhatsApp. Niðurstöður benda til þess að ákjósanlegast er að nýta lokaðar samskiptarásir og bjóða upp á tvíhliða samkipti, samtal. Ekki telst hentugt að nýta sér vettvang þar sem settar eru fram einhliða upplýsingar sem væru jafnvel fyrir allra augum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Íris Ósk Gísladóttir 1988-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/43460
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/43460