Bifröst University
Innleiðing sjálfsafgreiðslulausna í matvöruverslanir : upplifun verslunarstjóra á breyttum verslunarháttum
Abstract
dc:description.abstractMarkmiðið með rannsókninni er að ná fram dýpri þekkingu og skilningi á skipulagsheildum sem innleitt hafa sjálfsafgreiðslulausnir með því horfa til þeirra áskorana og upplifana sem íslenskir verslunarstjórar stóðu frammi fyrir í slíku breytingarferli. Leitast er við að varpa nýju ljósi á þætti sem vert er að hafa í huga fyrir fyrirtæki sem ekki hafa innleitt sjálfsafgreiðslu en hugnast að fara í þá vegferð. Rannsóknin var eigindleg, könnunarrannsókn. Tekin voru hálf-opin djúpviðtöl við átta verslunarstjóra innan þriggja verslunarkeðja sem höfðu reynslu af innleiðingu sjálfsafgreiðslu. Öll viðtölin voru framkvæmd vorið 2022. Viðtölin voru kóðuð, greind og túlkuð. Fimm þemu mynduðust eftir túlkun gagna: 1) Innleiðing og lykilmælikvarðar, 2) Helstu áskoranir verslunarstjóra, 3) Upplifun verslunarstjóra á viðhorfi hagaðila, 4) Árangur innleiðingar sjálfsafgreiðslulausna og 5) „Þetta er framtíðin“. Innleiðing sjálfsafgreiðslulausna í matvöruverslanir hefur samkvæmt niðurstöðum þessarar rannsóknar verið nokkuð farsæl en verslunarstjórar þurftu samt sem áður að fást við margþættar áskoranir í breytingaferlinu. Helstu áskoranirnar voru í upphafi innleiðingar og tengjast tækninni, þátttöku viðskiptavina (sérstaklega eldra fólks) og kennslu og þjálfun starfsmanna. Niðurstöður gefa til kynna að undirbúningur innleiðingarinnar, og þar með talið upplýsingastreymið á því stigi, hefði getað verið betri og að markvissari undirbúningur hefði getað dregið úr þeim áskorunum sem verslunarstjórar upplifðu í upphafi. Fyrirtækin studdust við lykilmælikvarða til að meta árangur innleiðingar svo stjórnendur hefðu tækifæri að grípa inn í ef þess gerðist þörf. Með því að hrinda í framkvæmd svo kölluðum hliðaraðgerðum á seinni stigum innleiðingar fækkuðu þó áskorunum og vandamálum að mati verslunarstjóra og reyndust þær mikilvægur liður í árangursríkri innleiðingu þessara breytinga. Samkvæmt upplifun verslunarstjóra hefur innleiðing sjálfsafgreiðslulausna í matvöruverslunum haft ýmsar jákvæðar afleiðingar í för með sér, svo sem skapað fjölbreyttari verkefni, aukið starfsánægju, bætt þjónustu, og skilað ánægðari viðskiptavinum sem hefur haft jákvæð áhrif á veltu í fyrirtækjunum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Emilía Þórðardóttir 1977-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42961
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42961