Bifröst University
Innleiðing Workplace hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands : hvert er viðhorf starfsfólks HSA til innleiðingar á Workplace og hver eru áhrif miðilsins á upplýsingaflæði stofnunarinnar?
Abstract
dc:description.abstractFyrirtæki eru í auknum mæli að innleiða samfélagsmiðla innan vinnustaða í þeim tilgangi að auka upplýsingamiðlun og efla samskipti starfsfólks. Fyrirtækja samfélagsmiðillinn Workplace var innleiddur hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) í nóvember árið 2021. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvert sé viðhorf starfsfólks HSA til innleiðingar á Workplace og hvort að það sé þeirra upplifun að miðilinn hafi aukið upplýsingaflæði stofnunarinnar eins og HSA lagði upp með. Þar sem starfssemi HSA er dreifð getur verið áskorun að koma upplýsingum til allra og því er áhugavert að sjá hvort að miðill á borð við Workplace bæti upplýsingaflæði. Fyrri rannsóknir um áhrif innleiðinga á fyrirtækja samfélagsmiðlum og upplifun starfsfólks á þeim hafa skoðað áhrif þeirra á upplýsingamiðlun, áreiti og streitu. Þeir þættir sem fyrri rannsóknir hafa einblínt á voru skoðaðir og settir í samhengi við opinbera heilbrigðisstofnun með því að leggja megindlega spurningakönnun fyrir starfsfólk Heilbrigðisstofnunar Austurlands. Niðurstöðurnar benda til að innleiðing á fyrirtækja samfélagsmiðlinum Workplace hjá HSA hafi haft jákvæð áhrif á upplýsingaflæði stofnunarinnar og upplifun þátttakenda er sú að magn upplýsinga hefur aukist með tilkomu miðilsins. Meirihluti starfsfólks finnst það efni sem kemur inn á Workplace gagnlegt, að miðillinn sé góð viðbót við upplýsingamiðlun stofnunarinnar og að upplýsingar komist betur til skila eftir innleiðinguna. Vonast er til að þessi rannsókn nýtist við innleiðingu á fyrirtækja samfélagsmiðlum hjá öðrum opinberum stofnunum og fyrirtækjum á Íslandi.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Steinunn Sigurðardóttir 1987-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- http://hdl.handle.net/1946/42954
- OAI identifier oai:identifier
- oai:skemman.is:1946/42954