Back to results

Bifröst University

Markaðssetning og umfjöllun um Covid-19 bóluefnin í íslenskum fjölmiðlum

Abstract

dc:description.abstract

Innrömmun ákveðinna viðfangsefna í fjölmiðlum getur átt þátt í því að móta skilning og skoðanir þess aðila eða hóps sem tekur á móti skilaboðunum. Lyfjafyrirtæki þurfa að reiða sig á að umfjöllun um ný lyf eða bóluefni séu rammaðar inn á jákvæðan hátt í læknaritum og fjölmiðlum til ná fram tilætluðu sölumarkmiði, annars gæti verið hætta á að margra ára þróunarkostnaður sé glatað fé. Bóluefnin við Covid-19 eru ný af nálinni og hafa fengið mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Margar rannsóknir hafa sprottið upp um Covid-19 bóluefnin, til að mynda um það hvernig landið liggur í því hve stór hluti almennings hyggst taka bóluefnin og einnig eru til áætlanir um það hvernig skuli haga kynningar- og markaðsmálum og hvernig taka eigi á bóluefnahiki (e. vaccine hesitancy). Byggt á fræðilegri þekkingu varðandi markaðssetningu lyfja og bóluefna er áhugavert að skoða hvort umfjöllunin fram að bólusetningartakmarkinu sumarið 2021 hafi verið þáttur í að markaðssetja bóluefnin fyrir landsmönnum. Það var gert með því að svara rannsóknarspurningunni: Hvað felst í markaðssetningu og umfjöllun um Covid-19 bólefnin í íslenskum fjölmiðlum? Rannsóknin var framkvæmd með innihaldsgreiningu með því að kóða 177 fréttir, þær voru flokkaðar í tvo yfirramma, heilsufarsleg sjónarmið og samfélags- og hagkerfis sjónarmið, innan þeirra voru 7-8 undirflokkar. Einnig voru fréttirnar kóðaðar eftir því hvort innrömmunin væri jákvæð, neikvæð eða hlutlaus í garð bóluefnanna. Niðurstöður þessarar rannsóknir benda til þess að markaðssetning á Covid-19 bóluefnunum hafi átt sér stað að einhverju leyti í gegnum fjölmiðla hérlendis þar sem afgerandi hluti frétta eru í jákvæðum tón, þ.e.a.s. í hag bóluefnanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elma Rut Jónsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40576
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40576

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elma Rut Jónsdóttir 1989-. Markaðssetning og umfjöllun um Covid-19 bóluefnin í íslenskum fjölmiðlum. 2022. http://hdl.handle.net/1946/40576