Back to results

Bifröst University

„Settu hendurnar í vasann og fáðu yfirsýnina“ : áherslur vettvangsstjóra í stjórnun á vettvangi aðgerða og hugmyndafræði þjónandi forystu

Abstract

dc:description.abstract

Á Íslandi búum við svo vel að eiga fólk sem sérhæfir sig í björgun þegar áföll dynja yfir, eins og náttúruhamfarir, slys eða eldsvoði, svokallaðir viðbragðsaðilar sem bregðast við þegar áföll dynja yfir. Fyrri rannsóknir benda til að við björgunaraðgerðir skipti samhæfing ólíkra viðbragðsaðila miklu máli og að leiðtogar björgunaraðgerða þurfi að forðast miðstýringu. Fyrri rannsóknir benda til að þjónandi forysta sé árangursrík leið í stjórnun en fáar rannsóknir liggja fyrir um stjórnun aðgerða í því ljósi og fáar rannsóknir hafa verið gerðar um reynslu breiðs hóps viðbragðsaðila af stjórnun mismunandi aðgerða og mikilvægt að kanna hver reynsla vettvangsstjóra er af slíkri stjórnun. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á áherslur reynslumikilla vettvangsstjórnenda við stjórnun á vettvangi aðgerða og leita svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum. Hver er reynsla vettvangsstjóra og áherslur þeirra í stjórnun á vettvangi í aðgerðum? Endurspegla þær áherslur hugmyndafræði þjónandi forystu? Gerð var eigindleg rannsókn með viðtölum við ellefu vettvangsstjórnendur, notuð var þemagreining og sett fram þrjú yfirþemu og níu undirþemu. Niðurstöður benda til þess að vettvangsstjórnendur leggi áherslu á samvinnu ólíkra viðbragðsaðila sem þeir ná fram með valdeflingu, hlustun og yfirsýn. Niðurstöður benda einnig til þess að áherslur vettvangsstjóranna séu í takt við lykilþætti þjónandi forystu, það er framsýni, hlustun, valdeflingu, jafningjabrag, innri styrk og samvinnu. Niðurstöður rannsóknarinnar geta verið framlag til þekkingar um árangursríkar áherslur í stjórnun björgunaraðgerða og geta nýst meðal viðbragðsaðila sem og fyrir aðra sem takast á við áföll. Niðurstöður geta einnig haft hagnýtt gildi fyrir forystu og stjórnun almennt. Lykilorð: vettvangsstjóri, viðbragðsaðilar, björgunaraðgerðir, yfirsýn, samvinna, jafningjabrag, ástandsvitund, þjónandi forysta

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ástvaldur Helgi Gylfason 1984-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/40093
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/40093

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ástvaldur Helgi Gylfason 1984-. „Settu hendurnar í vasann og fáðu yfirsýnina“ : áherslur vettvangsstjóra í stjórnun á vettvangi aðgerða og hugmyndafræði þjónandi forystu. 2021. http://hdl.handle.net/1946/40093