Back to results

Bifröst University

Breytingastjórnun : viðbrögð og afleiðingar Covid-19 hjá Ríkisútvarpinu ohf.

Abstract

dc:description.abstract

Þessi ritgerð fjallar um áskoranir sem stjórnendur Ríkisútvarpsins stóðu frammi fyrir þegar krónuveiran ógnaði allri heimsbyggðinni. Tekið er fyrir hugtakið breytingastjórnun sem skilgreint er sem skipulögð nálgun til þess að gera breytingar á skipulagsheildum í fyrirtækjum. Kenningar í breytingastjórnun auðvelda stjórnendum og starfsfólki að greina breytingaþörfina og gera nauðsynlegar breytingar á starfsemi fyrirtækis. Rannsóknarspurningin sem leitað verður svara við er: „Hverjir voru mikilvægustu þættirnir sem stjórnendur RÚV þurftu að hafa í huga, í því óvissuástandi sem varð til vegna COVID-19?“ Tekin voru viðtöl við stjórnendur sem tóku þátt í breytingum á allri starfsemi Ríkisútvarpsins. Verkefni þeirra var að halda órofnum rekstri allra miðla þrátt fyrir fjöldatakmarkanir og aðrar sóttvarnarreglur. Fjallað er um starfsemi RÚV til þess að útskýra hvaða vandamálum stjórnendur stóðu frammi fyrir. Á sama tíma og sóttvarnarreglur voru hertar og venjuleg starfsemi gat ekki haldið áfram var sett aukin krafa frá samfélaginu að Ríkisútvarpið myndi koma til móts við almenning. Það var gert með aukinni dagskrá til að bregðast við breytingum á daglegu lífi fólks. Einnig var stuðst við rannsókn sem var gerð meðal starfsmanna í miðri fyrstu bylgju. Sú rannsókn sýndi fram á stuðning við stjórnendur og ánægju með þær aðgerðir sem farið var í til þess að halda starfsemi miðlana órofinni. Fræðilegi kaflinn fjallar um 8 þrepa módel Kotters og algeng mistök við breytingar samkvæmt Kotter. Einnig er fjallað um kraftagreiningarkenninguna, Þriggja þrepa módel Kurt Lewin og breytingakúrfu Hübler-Ross. Niðurstöður benda til þess að þær kenningar sem hafðar voru til hliðsjónar þegar breytingar voru gerðar á fyrirtækinu gerði það að verkum að starfsfólk var vel upplýst um gang mála og undirbúningurinn var til fyrirmyndar. Erfitt er að takast á við ógn sem enginn hefur áður þurft að takast á við, en með samheldnu átaki allra var hægt að framkvæma hluti sem áður var talið ómögulegt. Stjórnendur lærðu mikið af fyrstu bylgjunni sem kom að góðum notum þegar þriðja bylgjan skall á.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gísli Berg Guðlaugsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
http://hdl.handle.net/1946/39649
OAI identifier oai:identifier
oai:skemman.is:1946/39649

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-07-27
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gísli Berg Guðlaugsson 1983-. Breytingastjórnun : viðbrögð og afleiðingar Covid-19 hjá Ríkisútvarpinu ohf.. 2021. http://hdl.handle.net/1946/39649